Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | þri. 13. okt. 2009

Parísarbúar fagna 90 ára afmæli Citroën

Nýi og gamli tíminn mætast. Hinn sígildi Citroën DS andspænis Citroën DS3, fulltrúa nýju DS línunnar frá Citroën.
Árið 1919 hóf André Citroën framleiðslu á fólksbílum, sem nefndir voru fljótlega eftir framleiðenda sínum, eins og venja var í þá daga. Citroën hóf framleiðsluna af miklum eldmóð í París og átti eftir að smíða marga af frægustu bílum Frakklands.

Sjón er sögu ríkari

Parísarbúar höfðu því ærið tilefni til að fagna að 90 ár eru liðin frá því að fyrstu Citroën bílarnir óku um götur borgarinnar. Citroën skóp hátíðatíðahöldunum viðeigandi búning í miðborg Parísar og þangað óku fylktu liði allir elstu, bestu, flottustu, nýjustu og þekktustu Citroën bílarnir og óhætt að segja að sjón er sögu ríkari í þessum efnum.


Skoða svipmyndir af Citroën hátíðahöldunum í París.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli