Smelltu á flokk

Citroën frétt 

04. september 2010
Citroën | mán. 26. okt. 2009

Tilfinningaþrungin stund hjá Citroën liðinu

Heimsmeistarar í ralli 6. árið í röð! Loeb og Elna ásamt Citroën C4 keppnisbílnum þeirra.
Þetta er sjötta árið í röð sem Citroën tvíeykið sigrar HM í rallakstri og er það besti árangur keppninnar til þessa. Með sigrinum í Bretlandsrallinu lönduðu félagarnir Loeb og Elna jafnframt 54. sigrinum á ferli þeirra.

Loeb náði strax forystunni

Bretlandsrallið fór fram í Wales um helgina og er það 12. og síðasta rall keppninnar. Mikko Hirvonen (Ford) tók af stað með eins stiga forystu á Loeb og það var því að duga eða drepast fyrir Citroën liðið.

Loeb náði þó strax forystunni og þó að Hirvonen tækist að ógna honum á fyrstu sérleiðinni, jók Loeb forystuna í tæplega 30 sek. með frábærri frammistöðu á næstu tveimur leiðum.

Húddið gerði útslagið

Hirvonen náði að saxa jafnt og þétt á forskotið í gær, en á næstsíðustu sérleiðinni opnaðist húddið á keppnisbílnum hans. Það kostaði finnska ökuþórinn rúma mínútu, sem gerði endanlega út um sigurvonir hans.

Tókst honum að tryggja sér 2. sætið, en naumlega þó með aðeins 0,9 sek. betri tíma en Dani Sordo, sem keppir einnig á Citroën.

Sjónarmunur var á Loeb og Hirvonen fyrir Bretlandsrallið, en einungis eitt stig skildi þá að. Það var því tilfinningaþrungin stund þegar ljóst var að Loeb hefði sigrað með rétt rúmlega mínútu forskoti á helsta andstæðing sinn.

Sébastien Loeb er sigursælasti ökuþór rallsögunnar og setur því nýtt met i hvert sinn sem hann sigrar mót. Daniel Elna hefur verið aðstoðarökumaður Loebs undanfarinn áratug.


Úrslit í HM í ralli 2009



1. Sebastien Loeb/Citroen 3h16m25.4s
2. Mikko Hirvonen/Ford + 1m06.1s
3. Dani Sordo/Citroen + 1m07.1s
4. Petter Solberg/Citroen + 1m28.1s
5. Henning Solberg/Ford + 6m28.0s
6. Matthew Wilson/Ford + 7m46.0s
7. Jari-Matti Latvala/Ford + 12m11.9s
8. Conrad Rautenbach/Citroen + 14m27.8s
9. Eyvind Brynildsen/Skoda + 22m22.7s
10. Armindo Araujo/Mitsubishi + 24m18.8s


Nánar um HM í ralli 2009




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli