04. september 2010
Citroën
|
mán. 16. nóv. 2009
Citroën C-Zero er 100% rafbíll
Nýr C-Zero er 100% rafbíll og 100% visthæfur.
Nýi borgarbíllinn Citroën C-Zero er rafbíll sem er beinlínis hannaður með tilliti til þarfa borgarbúans. Hann er lítill og nettur, fljóthlaðinn og með nægilega langdrægni fyrir dagsakstur um borgina. Þá er hann einstaklega hljóðlátur og þökk sé frábærri hljóðeinangrun, nær skarkali borgarinnar vart eyrum þeirra sem eru um borð. Tónlist, samræður eða bara þögnin fær fyrir vikið einstakan hljóm.
Nú þegar hefur Citroën framleitt um 5.500 rafbíla og byggir hönnun Citroën C-Zero því á traustum þekkingargrunni. Með hliðsjón af vaxandi hlut fyrirtækisins á þessum ört vaxandi markaði er jafnframt ljóst að Citroën hefur alla burði til að verða leiðandi rafbílaframleiðandi á næstu misserum.
Þessi umhverfisvæni borgarbíll var þróaður í samstarfi við Mitsubishi Motor Corporation og er væntanlegur á markað á síðari hluta næsta árs.
100% rafbíll
Citroën C-Zero er með PMS rafmótor (permanent magnet synchronous motor) sem skilar 47kW eða 64 hestöflum við 3.000 til 6.000 sn.m. Hámarks tog nemur 180 Nm við 2.000 sn.m. Vélin er í miðjum bílnum og er hún knúin af 330v rafhlöðukerfi af nýjustu liþíum-ion kynslóð, sem samanstendur af 88 50-Ah rafhlöðum. Liþium-ion rafhlöður eru sambærilegar hefðbundnum rafhlöðum að afli og endingu en mun léttari, sem skiptir verulegu máli fyrir dragi bílsins á hverja hleðslu.
Einfalt og fljótlegt
Það er bæði fljótlegt og einfalt að endurhlaða rafbíllinn Citroën C-Zero. Honum er einfaldlega stungið í samband í 220v innstungu (venjuleg heimilisinnstunga) og fullhlaðinn hefur hann um sex klukkustunda langdrægni. Hægt er að ná 80% hleðslu á rafhlöðuna á einungis 30 mínútum með 125A straumbreyti á 400v, sem skilar 50 kW í afköst. Þessi knái rafbíll er jafn einfaldur í notkun. Þegar hann er ræstur, gefur hann frá sér hljóðmerki til merkis um að vélin sé í gangi og að því búnu er hann eins og venjulegur sjálfskiptur bíll í akstri. Reyndar að því undanskildu að í stað bensínmælisins er mælir sem telur niður hleðslu rafhlöðunnar.
Draumabíll borgarbúans
Rannsóknir sýna að styttri vegalengdir einkenna dæmigerðan borgarakstur, hvort heldur einkabílar eiga í hlut, fyrirtæki eða opinberir aðilar. Yfirleitt er ekið 40 km eða styttra í hverri ferð og um 70% allra ferða eru 30 km eða styttri. Hönnun Citroën C-Zero er að öllu leyti löguð að þessum þörfum borgarinnar, auk þess að vera ódýr og afar visthæfur í rekstri. Hann tekur fjóra fullorðna í sæti, þökk sé 2,55 m hjólhafi og þrátt fyrir smæðina er farangursrýmið gott eða 166 ltr. Sem draumabíll borgarbúans mun hann að sjálfsögðu státa af fyrsta flokks þægindum og ríkulegum staðalbúnaði. Má þar sem dæmi nefna ABS aflhemla, TCS spólvörn, ESP stöðugleikastýringu, rafdrifnar rúður, sex loftpúða og loftkælingu.
Citroën C-Zero í tölum
C-ZERO er 3,48 sm langur og með einungis 9 metra beygjuradíus. Hann er því nettur og sem slíkur afar vænn í þéttskipaðri borgarumferðinni. Þó að hann sé smár þá er Citroën C-Zero engu að síður knár, með 130 km hámarkshraða. Þá nær hann 100 km hraða á klukkustund á 15 sekúndum og 60-90 km á klukkustund á aðeins sex sekúndum sem er sambærilegt við bensínbíla í sama stærðarflokki.
Nánar um nýja rafbílinn Citroën C-Zero
Sjá myndband um Citroën C-Zero