29. júlí 2010
Citroën
|
fös. 20. nóv. 2009
Fyrstu myndir af Citroën DS2 eru komnar
Nýr Citroën DS2 sækir nokkuð í gamla Citroën Braggann en verður þó lúxusbíll fyrir 21. öldina.
Einn ástsælasti bíll Evrópubúa er Citroën 2CV, sem á Íslandi var oftast kallaður Citroën Braggi, og leit hann fyrst dagsins ljós á eftirstríðsárunum, nánar tiltekið árið 1948.
2CV þýddi í raun tveir gufuhestar. Það var hið mjög svo hóflega afl bílsins sem var fyrir margar sakir sérstakur. Fjöðrun bílsins var dúnmjúk og voru til frægar auglýsingar þar sem franskur bóndi ók yfir akur á fullri ferð með fullan farm af eggjum án þess að brjóta eitt einasta egg – enda ók hann Citroën 2CV sem bar af öðrum bílum við slíkar kringumstæður.
Hönnun bílsins var að flestu leiti einnig afar sérstök. Hönnunarstefnan var undir miklum áhrifum frá Bauhaus-stílnum en hagnýtt gildi bílsins var samt ávallt í fyrirrúmi. Nýjungarnar voru þannig margar. Það var til dæmis hægt að taka sætin úr bílnum til að sitja í lautarferðum, þakinu var hægt að rúlla aftur líkt og á sardínudós en jafnframt var bíllinn einfaldur og endingargóður.
Það er því kannski ekki furða biðlistar hafi strax myndast á sínum tíma og náðu þeir að hámarki fimm árum. Citroën seldi um fjórar milljónir eintaka af 2CV fram til ársins 1990 og því hefur verið mikið horft til útgáfu 21. aldarinnar af þessum frækna bíl.
Nýr Braggi
Citroën hefur duflað við hugmyndina af nýjum Bragga nokkuð lengi en síðasta útgáfan af þeirri vinnu var hugmyndabíllinn Revolte sem var kynntur fyrir stuttu á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt.
Bíllinn sá var æði róttækur, skærfjólublár á litinn og mun flóknari útlits en upprunalegi Bragginn þó vissulega hafi verið til staðar margar tilvísanir í forverann.
Fæstir áttu þó von á að framleiðslu útgáfa bílsins væri handan við hornið – en það er einmitt raunin. Fyrstu myndir af 21. aldar kynslóð Braggans hafa nú komið fram og mun bíllinn verða nefndur Citroën DS2 sem þýðir í raun að Citroën ætlar bílnum að vera fyrsti kostur í nýrri línu Citroën þar sem lúxus og lífsstíll skipta miklu máli en DS einkennið er notað fyrir þá línu.
DS2 verður líka sérstakur
Útlitslega hefur reynst nauðsynlegt að gera miklar breytingar frá upprunalegu útliti 2CV, en ekki svo miklar breytingar ef miðað er við hugmyndabílinn.
Mikil áhersla er lögð á gæði sem henta nútíma lífsstíl borgarbúa Evrópu og er bíllinn því smár en knár og má búast við að eigendur muni njóta allra þeirra gæða sem búast má við í góðum borgarbíl, eins og tónhlöðutengingu, góðum hljómtækjum, öflugu miðstöðvarkerfi og fleiru sem skiptir máli í þéttri borgarumferð.
Bíllinn heldur brotalínum í vélarhlífinni, útstæðum brettum, bognu þaki, og flötum afturhlera sem allt eru tilvísanir í 2CV. Svo DS2 uppfylli kröfur 21. aldarinnar um lúxus og almenn lífsgæði þá er hann þó fjögurra dyra og opnast afturhurðirnar á sama máta og á hugmyndabílnum, út frá miðju, líkt og á Mazda RX8 sportbílnum.
Citroën mun halda verðinu á þessum sérstaka bíl niðri með því að nýta vélar og gírkassa frá nýjustu kynslóð Citroën C3 sem er væntanlegur snemma á næsta ári. Svo er bara spurningin hvort biðlistarnir verði ekki jafn langir og þegar 2CV kom á markað og því ráð að fylgjast vel með hvenær opnað verður fyrir pantanir ef ætlunin er að festa sér eintak.
Citroën 2CV auglýsing á youtube.com
Umfjöllun um nýja Citroën DS2 Ítarefni um Citroën 2CV