Smelltu á flokk

Citroën frétt 

29. júlí 2010
Citroën | þri. 01. des. 2009

Auto Express gefur nýjum Citroën C3 góða einkunn

Nýr Citroën C3 er nýstárlegur og framandi eins og sönnum Citroën sæmir.
Ferskt og fjörlegt er það sem skipir einna mestu máli þegar smábílar eru settir á markað. Bílaframleiðendur gera sér vel flestir grein fyrir þessu eins og sjá má af vinsældum bíla eins og Fiat 500 og Mini sem uppfylla þessi skilyrði. Franskir bílaframleiðendur hafa hinsvegar einnig verið mjög framarlega á þessu sviði í gegnum árin og oft komið með frumlegar lausnir á því hvernig borgarbílar eiga að vera. Það má einnig sjá nú að sú reynsla hefur verið höfð til hliðsjónar við hönnun hins nýja Citroën C3 því bíllinn er afar fersklegur að sjá. Ekki nóg með það, ef marka má reynsluakstur hins þekkta tímarits Auto Express á bílnum þá er hann einnig sérlega fjörlegur.

Ráðist á garðinn þar sem hann er hæstur

Citroën C3 státar af glæsilegri hönnun eins og sönnum Citroën sæmir. Bíllinn er þó mun fágaðri og gæðalegri að sjá en forverinn enda hefur framleiðandinn lagt mikla áherslu á að tryggja hönnunarlega forystu sína. Bíllinn státar til dæmis af stórri framrúðu sem eykur birtu í bílnum og bætir rýmistilfinningu og einnig hefur útlit bílsins notið góðs af hugmyndabílum síðustu ára, fengið meira áberandi og sérstakari fram- og afturljós, glæsilegri innréttingar og mælaborð sem lítur út fyrir að koma úr mun dýrari bíl. Með framansagt að vopni ætlar Citroën sér að ráðast að samkeppninni þar sem hún er hvað mest, þar sem bílar eins og Ford Fiesta og VW Polo hafa sterka stöðu.

Fjórar stjörnur af fimm

En hvað segir Auto Express um bílinn? Að sögn tímaritsins er alveg ljóst að eftir þessum bíl verður tekið. Útlitslega er bíllinn jákvæð þróun frá fyrri kynslóð bílsins sem blaðamanni Auto Express þótti orðin fremur gamaldags. Þá ber hönnunin vott um meira sjálfstraust, bæði að innan og utan og á sama tíma hefur tekist að bjóða stærra farþega- og farangursrými.

Innréttingarnar fá góða dóma og þykja mikið framfaraskref. Reyndar segir blaðamaðurinn að Citroën sé aftur komið á rétta sporið og vísar hann þar án efa til þess að Citroën bílar hafa oft á tíðum vísað veginn í rýmishönnun og efnisvali.

Þá þótti bíllinn bjóða upp á prýðisgóða aksturseiginleika og framúrskarandi nýtni á eldsneyti en prófunarbíllinn eyddi aðeins 4,51 lítrum á hundraðið og CO2 losun hans er 118 g/km sem þýðir að bíllinn myndi fá visthæfan stimpil á Íslandi þrátt fyrir að skarta öflugri 110 hestafla 1,6 lítra dísilvél.

Hinn nýi Citroën 3 mun þykja með afburðum þægilegur, með mjúka fjöðrun sem breiðir yfir helstu galla hvers vegar og er sú þróun í takt við stefnu Citroën sem hefur verið mörkuð til næstu ára, að tryggja framleiðandann sem brautryðjanda í þægindum og lúxus en það er staða sem Citroën er ekki að öllu ókunnug.

Umfjöllunin um nýja Citroën C3
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli