Kimi Räikkönen segist fá besta rallbílinn, Citroën C4
Kimi Räikkönen og Sébastien Loeb munu eflaust hala inn marga sigra á Citroën C4 rallbílnum
Kimi Räikkönen mun taka sæti við stýrið á næsta keppnistímabili og má reikna með að Citröen Red Bull liðið verði afar sigursælt ef marka má fyrri árangur Citroën bílanna.
Samstarfið við Red Bull og Kimi Räikkönen kemur nefnilega í kjölfar feikna góðs árangurs Citroën Total liðsins sem hefur unnið fimmtán keppnir síðan 2008 en 2008 og 2009 unnu Sébastien Loeb og Daniel Elena heimsmeistara-titilinn í rallí.
Sigursæll og fjölhæfur
Kimi Räikkönen segist vera afar ánægður með niðurstöðuna, hann fái að keppa á besta rallbíl í heimi sem vissulega sé mikil áskorun. Räikkönen fær reyndar ekki að keppa með verksmiðjuliðinu sjálfu enn um sinn, enda engin þörf á að skipta út vinningsliði. Hann mun keppa í svonefndu junior-liði en samt fá eins keppnisbíl og þeir Loeb og Dani Sordo og Marc Marti sem aka hinum verksmiðjubílnum.
Räikkönen, sem hefur verið afar sigursæll og varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 2007, segir að hugur sinn hafi lengi stefnt að rallíi. Það er þó einkum heimsmeistarakeppnin sem hefur höfðað til Räikkönen og nú hafa Citroën og Red Bull tryggt honum tækifærið og hver veit nema Räikkönen fái innan langs tíma einn heimsmeistarabikarinn enn á arinhilluna.