06. febrúar 2012
Citroën
|
mán. 22. feb. 2010
Citroën á miklu skriði, glæsilegur DS High Rider hugmyndabíll afhjúpaður
Stórglæsilegur nýr Citroën bíll mun vera á leið á markað sem gæti reynst kjörinn fyrir íslenskar aðstæður. Um er að ræða fjórhjóladrifsbíl, hlaðinn lúxus og góðri fyrirætlan því bíllinn er líka tvinnbíll með dísilvél.
Citroën hefur farið í gegnum mikla endurnýjun að undanförnu og má ráða það af fréttum frá fyrirtækinu að mikil sókn til framtíðar sé að hefjast. Citroën er bílaframleiðandi sem oft hefur þótt leiðandi í hönnun, jafnvel framandi eins og hin margfrægi
Citroën DS er vitnisburður um.
Ljóst er að Citroën óskar sér þess að komast í sömu stöðu á ný, núna á 21. öldinni, og sendir fyrirtækið frá sér hvern hugmyndabílinn á fætur öðrum sem ber af útlitslega og tæknilega.
DS er framtíðin
Fyrstu bílarnir sem hannaðir eru undir nýrri hönnunarstefnu Citroën eru farnir að koma á göturnar en um er að ræða
DS línuna frá Citroën sem ætlað er að bjóða mikla tækni, framúrskarandi og ögrandi útlit í bland við sjaldséðan lúxus – allt í minni bílum og millistærðarbílum sem Citroën telur að verði val framtíðarinnar.
Ein slík hugmynd var á dögunum kynnt í Genf en það er hugmyndabíllinn
Citroën DS High Rider sem er einskonar tveggja dyra lúxus blendingur af fjórhjóladrifsbíl og
GT bíl. Citroën nýtir eflaust þekkingu sína úr
rallakstri til þess að hanna bílinn enda hefur Citroën verið nánast algjörlega ráðandi í
heimsmeistarakeppninni í rallý síðan 2004.
Mun fara í framleiðslu
Lítið er vitað um bílinn enn sem komið er annað en að um er að ræða tvinnbíl með dísilvél sem eigi fyrst og fremst að sýna túlkun Citroën á hvað lúxus og fágun er.
Það er varla hægt að segja annað en að Frakkarnir þekki hvoru tveggja því bíllinn er í senn glæsilegur og hálfpartinn nautnalegur á að líta. Hitt er þó vitað að bíllinn mun fara í framleiðslu og það fljótlega því DS High Rider á að fylgja á eftir hinum nýstárlega
DS3 sem þegar er kominn á markað og mun líklega verða kallaður DS4 þegar að því kemur.