Smelltu á flokk

Citroën frétt 

29. júlí 2010
Citroën | þri. 09. mar. 2010

Klæðskerasaumaður Citroën

Enn einn glæsilegur hugmyndabíll Citroën lítur dagsins ljós, í þetta skiptið fyrir breska herrablaðið GQ.
Einn slíkra bíla sem flokkast undir nýja hönnun Citroën er hugmyndabíllinn GQbyCitroën sem hannaður var fyrir GQ, eitt vinsælasta herrablað Bretlands. Ekki er um að ræða bíla af stáli og gleri, heldur er fyrst og fremst um hönnunartilraun að ræða sem þýðir að bíllinn er stafrænn. Hann er semsagt ekki til nema á skjáborðinu... ennþá að minnsta kosti.

Hönnun bílsins er þó ekkert minna áhugverð fyrir það. Um er að ræða bíl sem á að vera hinn fullkomni meginlands-ferðabíll. Hann á að geta tekið eigandann í langar ferðir í fullkomnum þægindum svo eigandinn geti stigið út á áfangastað með reisn.

Saman í púkkið


Hönnun bílsins er því í anda hefðbundinna GT bíla en þar líkur því sem er hefðbundið við bílinn. Rúðurnar eru lágar og sömuleiðis þakið. Bíllinn er afar rennilegur þó hann sé fremur hábyggður að sjá. Framendi bílsins er vígalegur, með stórum loftinntökum sem fæða vél bílsins nægu lofti. Felgurnar eru stórar og fylla vel út í hjólaskálarnar en allt þýðir þetta að bíllinn er afar kraftalegur að sjá.

Hönnuðir bílsins eru tveir. Ritstjóri GQ tímaritsins, Dylan Jones, og einn vinsælasti hönnuður Citroën í dag, Mark Lloyd, sem hefur nýlokið við hinn eftirsóknarverða Citroën DS3 í nýrri lúxuslínu Citroën.

Lloyd segir að ekki sé um sportbíl að ræða. Þetta sé ferðabíll fyrir séntilmenn og síður en svo bíll fyrir alla. Ekki ber á öðru en að það ætlunarverk Lloyd og Jones hafi tekist því bíllinn er æði sérstakur.

Ólíklegur til framleiðslu

Það er heldur ekkert til sparað í innanrými bílsins sem einnig er mjög spennandi eins og vera ber í Citroën. Innréttingarnar eru framúrstefnulegar, notalegar og nýstárlegar í senn. Efnin í sætin koma frá frægu klæðskerafyrirtæki á Savile Row götunni í London en þar eru til húsa allir frægustu klæðskerar Bretlands.

Möguleg vél í þennan bíl gæti verið 1,6 lítra tvinnvél sem skilað gæti bílnum í 100 k/klst á innan við 5 sekúndum. Það eru þó taldar afar litlar líkur til þess að bíll eins og þessi fari nokkurn tímann í framleiðslu.

Eins og títt er má þó telja líklegt að ákveðin einkenni bílsins muni rata í framleiðslubíla enda eru hugmyndabílar algengur farvegur fyrstu hugmyndanna sem skapa bíla framtíðarinnar.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli