Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fös. 19. mar. 2010

Frönsk hátíska mætir... franskri hátísku

Franska tískuhúsið Yves Saint Laurent hefur sett mark sitt á hinn nýja Citroën DS3.
Að splæsa saman hátísku fataframleiðenda og hátísku bílaframleiðanda er einmitt það sem Citroën hefur gert enda er fyrirtækið komið á bragðið eftir mikla velgengni nýrrar hönnunar fyrirtækisins síðustu mánuðina. Ný DS lína framleiðandans hefur hlotið einróma lof og þótt færa hinum franska bílaframleiðanda forna frægð á 90 ára afmæli fyrirtækisins. DS lína Citroën er lúxuslína framleiðandans, einskonar hátísku lína frá Citroën. Er DS bílunum ætlað að etja kappi við aðra frækna bíla í þessum stærðarflokki bíla eins og Mini og Fiat 500.

DS3 er sá bíll DS línu Citroën sem mesta athygli hefur hlotið enn sem komið er. Bíllinn er komin í sölu á meginlandinu og býður DS3 allt í senn sportlega eiginleika, mikin lúxus og frábæran útbúnað í nettum pakka.

Dæmigerður borgarbíll

Citroën býður upp á gríðarlegt úrval af aukahlutum fyrir DS3 og því ætti hverjum og einum viðskiptavin að reynast auðvelt að finna eitthvað sem höfðar til hans. Mikið úrval innréttinga er fáanlegt en einnig eru margar útlitslegar útfærslur fáanlegar. Ein möguleg útfærsla til viðbótar var kynnt á dögunum þegar Citroën slóst í lið með franska hönnunarhúsinu Yves Saint Laurent.

Um er að ræða merki Yves Saint Laurent á svörtu þaki bílsins en einnig eru innréttingar bílsins sérhannaðar af tískuhúsinu. Reyndar er ekki talið að bíllinn muni fara í framleiðslu heldur ber fremur að skoða æfinguna með YSL sem vísbendingu um hvað hægt er að gera við Citroën DS3 bíla til þess að þeir skeri sig enn frekar úr fjöldanum.

Talið er líklegt að æfing Citroën sé ennfremur ætlað að höfða til breytingarfyrirtækja sem yfirleitt eru fljót að taka forvitnilega bíla upp á arma sína og breyta þeim með ærnum tilkostnaði fyrir fjáða viðskiptavini sína. DS3 er einmitt hentugur bíll í slíkar breytingar og nú er bara að bíða og sjá hvort eitthvert breytingarfyrirtækið bíti á agnið.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli