Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mán. 26. apr. 2010

Hinn ótrúlegi Citroën Metropolis á heimssýningunni í Shanghai

Citroën Metropolis er óneitanlega framtíðarlegur að sjá.
En hvernig tengjast Citroën og Metropolis? Jú, Metropolis er nýr hugmyndabíll Citroën sem mun verða frumsýndur á heimssýningunni í Shanghai frá 1. maí til 31. október. Citroën Metropolis er þó meira en bara hugmyndabíll því hann er viðurkenning Citroën á þeirri gríðarlegu efnahagslegu þróun sem átt hefur sér stað í Kína síðustu áratugi.

Nútíma Metropolis

Metropolis Fritz Lang var undarlegt samfélag stjórnenda og þræla og sögusviðið var árið 2000. Þrátt fyrir stéttabaráttuna sem kvikmyndin átti að fjalla um hefur Metropolis nafnið einnig verið tengt við hátækni og framtíð. Þannig hefur Metropolis eignast sitt eigið líf þar sem það þykir eiga vel við um nútímalegustu borgirnar, alla þeirra kosti og galla, borgir eins og Shanghai.

Það er einnig óumdeilt að gríðarlegar stórborgir Kína draga til sín fólk og fyrirtæki þar sem fjöldinn eygir möguleika á meiri lúxus og betra lífi.

Citroën Metropolis á að fanga þessa hugmyndafræði. Bíllinn er algjörlega hannaður af alþjóðlegu hönnunarteymi Citroën sem hefur haft aðsetur í Shanghai síðan 2008.

Ætlunin var þannig að hanna listaverk á hjólum og eins og sjá má, á myndbandi í fullum gæðum sem hægt er að hlaða niður frá heimsíðu Citroën, hefur það svo sannarlega tekist. Myndbandið er til í samanþjappaðri útgáfu á Youtube og er þar ótrúleg hönnun teymisins sýnd á heillandi hátt.

Mikilfenglegur

Ef vera skyldi að Citroën Metropolis fengi næga athygli og þrýst yrði á Citroën að framleiða bílinn yrði hann að öllum líkindum tvinnbíll með vökvafjöðrun eins og sönnum Citroën lúxusbíl sæmir.

Bíllinn er engin smá smíði, 5,3 metrar að lengd, 2 metrar að breidd en þó aðeins 1,4 metrar á hæð. Að sögn hönnunarteymisins er hlutföllum bílsins, stærð og glæsileika ætlað að fanga mikilfengleika Kína.

Þokkafullar línur bílsins og ótal smáatriði skapa einstaka heild og upplifun sem byggir á hugmyndafræði hins framúrstefnulega franska bílaframleiðanda.

Með orðum Citroën þá sameinar Citroën Metropolis stórfengleika, stöðugleika og fágun við hugmyndauðgi, tækni og gæði. Þannig fangar Citroën Metropolis franska og kínverska eiginleika sem best á heimssýningunni í Shanghai.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli