Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fim. 03. jún. 2010

Fyrstu upplýsingar um nýjan Citroën C4

Glæsilegur prófíll nýja Citroën C4
Nýr C4 mun, eins og núverandi gerð bílsins, mæta þeim kröfuhörðustu á sviði tækni, gæða og framúrskarandi hönnunar, en auðvitað einnig bjóða franska hagnýtingu eins og hún gerist best. Fyrstu upplýsingarnar um hinn nýja C4 eru nú komnar fram og mun hliðarsvipur bílsins verða einkennandi sem fyrr en meira flæði er þó að finna í hönnuninni en áður. Myndir af bílnum voru fyrst gefnar út nú í júní og þurfti að geta sér til um endanlegt útlit fram að þeim tíma. Eins og við var að búast sýna þær að arftakinn er eins glæsilegur, ef ekki glæsilegri en forverinn.

Með nýjum C4 verður lögð enn meiri áhersla á aksturseiginleika og ökumann. Þetta er í takt við þróun Citroën undanfarið og endurspeglar árangur Citroën í heimsmeistarakeppninni í rallakstri þar sem fyrirtækið hefur unnið marga titla.

Bíllinn er útbúinn afar stóru farangursrými sem rúmar hvorki meira né minna en 408 lítra og það þó bíllinn sé aðeins 4,33 metrar á lengd. Það má einnig geta þess að Citroën C4 mun þá ráða yfir stærsta farangursrými í sínum flokki bíla. Það hjálpar til hve breiður Citroën C4 er en bíllinn er 1,79 metrar á breidd og hæð hans er 1,49 metrar. Ef allt er talið til er ljóst að Citroën C4 stækkar lítið eða um 5 sentímetra á lengdina, 2 á breiddina og 3 á hæðina.

Fullur af tæknibúnaði

Eins og sönnum Citroën sæmir verður Citroën C4 uppfullur af tæknibúnaði. Það verður meðal annars hægt að velja svokallaða „polyphonic“ eða fjöltóna aðvörunartóna, líkt og í farsíma og eins verður hægt að stilla lýsinguna í bílnum og lit hennar, t.d. í mælaborði. Þá verður bíllinn útbúinn sérstöku miðstöðvarkerfi sem er hægt að fínstilla mjög nákvæmt. Hljómkerfi bílsins verður einnig í sérflokki enda eru bílkaupendur farnir að gera mun meiri kröfur um hljómgæði þegar flestir ráða yfir vönduðum tónhlöðum með sinni uppáhalds tónlist.

Citroën C4 mun ennfremur mæta nýjustu mengunarkröfum og verður fyrsta útgáfa bílsins fáanleg með HDi vél sem losar einungis 109 g/km af koldíoxíði en markið er sett á 99 g/km losun af koldíoxíði skömmu síðar.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli