Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mið. 23. jún. 2010

Citroën á toppnum þegar HM í ralli er næstum hálfnað

Hér má sjá C4 bíl Citroën liðsins og Focus bíl Ford Abu Dhabi liðsins
Mótaröðin í HM í rallakstri stendur frá febrúar fram í nóvember og keppt er á þrettán mótum. Sjötta mótið var í Portúgal í lok maí og það næsta fer fram í Búlgaríu aðra helgina í júlí.

Eins og staðan er eftir sex keppnir hefur aðalökumaður Citroën, Sebastien Loeb, yfirburðastöðu í keppni ökuþóra með 126 stig. Næsti maður á lista er Sebastien Ogier, ökumaður Citroën Junior liðsins, með 88 stig. Í þriðja sæti er svo Mikko Hirvonen, aðalökumaður Ford með 76 stig.

Ford Abu Dhabi liðið, sem hlýtur að teljast aðalkeppinautur Citroën í mótaröðinni, er í öðru sæti í liðakeppninni með 163 stig, en Citroën trónir á toppnum með 189 stig. Citroën Junior liðið er svo í þriðja sæti í liðakeppninni með 106 stig.

Sébastien Loeb er sigursælasti ökuþór rallsögunnar og setur því nýtt met i hvert sinn sem hann sigrar mót. Daniel Elena hefur verið aðstoðarökumaður Loebs undanfarinn áratug.




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli