Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | mán. 05. júl. 2010

Nýir vistvænni Citroën bílar með stop/start tækni væntanlegir

e-HDi tæknin felst í HDi dísilvél með stop/start kerfi
PSA Peugeot Citroën kynntu nýlega tækni sem kölluð er e-HDi. Takmark samsteypunnar er að selja eina milljón bifreiða útbúna e-HDi tækninni fyrir árið 2013. e-HDi byggir á nokkrum atriðum:

- HDi vél, sem er ein sú skilvirkasta í boði í dag.
- Stop/start kerfi með sérstökum rafal
- e-booster kerfi sem endurræsir bílinn
- Rafalkerfi sem endurnýtir hemlaorku bílsins
- Gírkassa með endurbættu gírhlutfalli

Þess utan verða allar útgáfur Citroën með e-HDi einnig búnar lágviðnáms dekkjum.

Fyrstu gerðirnar sem búnar verða e-HDi tækninni verða Citroën C5, nýi Citroën C4 og C4 Picasso, frá haustinu. Tækninni verður síðan bætt í flesta Peugeot og Citroën bíla með 1.4 lítra og 1.6 lítra HDi vélum. Gera má ráð fyrir að um þriðjungur dísilbifreiða PSA verða með e-HDi vél.

Margir visthæfir bílar á leiðinni frá Citroën

Jean-Marc Gales, varaframkvæmdastjóri vörumerkjaþróunar PSA, sagði við athöfnina þegar tæknin var kynnt, að hann væri sannfærður um að e-HDi tæknin myndi setja nýjan staðal, „eins og HDi vélin gerði á sínum tíma, og mun viðhalda yfirburðastöðu okkar. e-HDi vélarnar okkar eru skilvirkastar, ekki aðeins hvað eldsneytisnotkun og losun koldíoxíðs varðar, heldur líka hvað varðar akstursánægju; með tafarlausa endurræsingu, engan titring og engan hávaða.“

e-HDi tæknin gerir PSA Peugeot Citroën kleift að auka forystu sína í vistvænum farartækjum með breiðara úrvali. Útgáfa tækninnar er hluti stærri áforma um að taka í notkun tækninýjungar sem ætlunin er að færi hvaða viðskiptavini sem er vistvænt farartæki sem henti þeirra þörfum. Samkvæmt þessum áfromum, til viðbótar við e-HDi tæknina, mun PSA setja á markað á næstu tveimur árum:

- Tvo rafbíla: Peugeot iOn og Citroën C-ZERO (2010).
- Tvo dísiltvinnbíla: Peugeot 3008 Hybrid4 og Citroën DS5 Hybrid4 (2011).
- Nýjar vélar, þar á meðal nýja tegund lítilla 1.0 og 1.2 lítra, þriggja strokka bensínvéla (2012).

PSA Citroën seldi næstum eina milljón bíla árið 2009 sem losa minna en 130 g/km af koldíoxíði, og þar af 757.000 bíla sem losa minna en 120g/km. Takmark félagsins er að selja eina milljón bíla sem losa minna en 120 g/km af koldíoxíði árið 2012.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli