06. febrúar 2012
Citroën
|
þri. 13. júl. 2010
Citroën mætti með rafbíl á Le Mans
Rafbíllinn Citroën Survolt var sýndur á Le Mans um síðustu helgi.
Citroën kynnti hugmyndabílinn Survolt fyrst til sögunnar á
bílasýningunni í Genf en nú hefur fyrirtækið stigið nokkru lengra því bíllinn var tekinn til kostanna fyrir
Le Mans keppnina 10. júlí síðastliðinn. Bílnum ók
Vanina Ickx, dóttir hins frækna belgíska Formúlu 1 ökumanns
Jacky Ickx, og fékk hún fyrst allra að njóta hins stórmerkilega
Citroën Survolt.
Bíllinn er tækniundur og afar sérstakur fyrir margar sakir. Um er að ræða hreinræktaðan rafbíl sem þó einblínir á afkastagetu og sportlega eiginleika. Citroën Survolt er þannig fremur stuttur, aðeins 3,85 metrar að lengd, en afskaplega breiður og lágur (1,87 metrar á breidd og aðeins 1,20 á hæð).
Léttur og öflugur
Þá nýtir bíllinn fullkomnustu tækni til að draga úr þyngd bílsins og nýtur hann því góðs af sterkbyggðri röragrind og koltrefjaefnis yfirbyggingu. Survolt býr svo yfir tveimur rafmótorum sem skila samtals um 300 hestöflum, strax frá byrjun. Það mætti því í raun segja að Survolt sé 300 hestöfl við 0-5000 snúninga. Það skiptir engu máli á hvaða snúningssviði Citroën Survolt er, aflið er alltaf það sama.
Þessi eiginleiki rafmótora gerir það að verkun að hröðun slíkra bíla er gríðarlega áhrifamikil. Survolt nær því 260 km/klst og hraðar sér í 100 km/klst á undir 5 sekúndum þrátt fyrir að hann nýti sér tækni framtíðarinnar sem enn er í þróun.
Það hjálpar bílnum mikið hve léttur hann er en þrátt fyrir þungar rafhlöðurnar sem vega 140 kíló er bíllinn sjálfur aðeins 1150 kíló. Í Le Mans keppninni sjálfri gætu bílar eins og Citroën Survolt fagnað nokkurri velgengi þegar fram líða stundir. En til þess að svo megi verða verður að vera leyfilegt að skipta rafhlöðunum út því það tekur að minnsta kosti tvær klukkustundir að hlaða þær, en allt að 10 klukkustundir með hefðbundinni 220 volta heimilistengingu.
Hugmyndin er þó forvitnileg og ljóst má vera að ekki vantar mikið upp á til þess að rafmagnsbílar og tvinnbílar fari að verða algengir jafnvel í þolaksturskeppnum eins og Le Mans. Enn þurfa aðdáendur visthæfra bíla þó að bíða um sinn en Citroën Survolt er þó afar forvitnileg innsýn í það sem koma skal.