Citroën og Ford hafa tilkynnt um áframhaldandi samstarf á sviði þróunar og framleiðslu dísilvéla. Liðlega sjö ár eru síðan Ford og Citroën undirrituðu samning á þessu sviði en samkvæmt nýjum samningi hyggjast félögin framleiða 2,2 lítra dísilvél sem gera má ráð fyrir að verði notuð í stærri gerðir fólks- og sendibíla frá bæði Citroën og Ford.
Samstarf Ford og Citroën hefur verið afar farsælt og nýlega tilkynntu forsvarsmenn vélaverksmiðju Citroën í Tremery í Frakklandi, sem er jafnframt afkastamesta verksmiðja heims í framleiðslu dísilvéla, að framleiddar hefðu verið ein milljón véla af hinni rómuðu gerð 1600 HDi /TDCi. Þessi vél er nú búin nýrri kynslóð samrásarinnsprautun og vegur vélin aðeins 120 kg sem stóreykur sóknarfæri framleiðandans þar eð vegna léttleika er unnt að bjóða hana í fleiri bílgerðum.
Citroën bíður vélina t.d. í C3, Berlingo, C4, Picasso og einnig í C5. Vélin er fáanleg 90 eða 110 hestafla en þrátt fyrir aflið er vélin afar sparneytin. Stærri vélin er nú þegar fáanleg í C4 Saloon hjá Brimborg og eyðir vélin aðeins 4,7 lítrum á hundraði miðað við blandaðan akstur. Hægt er að reynsluaka C4 dísil hjá Brimborg í Reykjavík, á Akureyri og í Reykjanesbæ.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.