Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | fös. 10. sep. 2010

Frumsýning, lægra verð og framúrstefnulegir Citroën

Citroën C3 með Zenith framrúðunni er ný upplifun. Prófaðu!
Citroën C3 og Citroën C5 eru á margan hátt sérstakir bílar, bílar fyrir fólk sem gerir kröfur um glæsilega hönnun og skarpa framtíðarsýn. Í rúm 90 ár hefur Citroën reglulega sent frá sér bíla sem eru sannkölluð listaverk. Nægir þar að nefna Citroën DS, en einnig hefur Citroën hannað bíla sem umbylta viðteknum skoðunum um notagildi og útlit, eins og gerðist með Citroën 2CV.

En hvernig eru þessi bílar sem Brimborg frumsýnir um helgina? Sjáum aðeins hvernig umfjöllun erlendra bílablaðamanna hefur verið.

Hið heimsfræga gengi Top Gear segir að með Citroën C3 hafi franski framleiðandinn farið afar skynsamlega leið. Í stað þess að búa til sportlegan borgarbíl hafi Citroën valið að hanna borgarbíl með áherslu á þægindi og hreyfanleika. Citroën C3 er hljóðlátur, sérstaklega með sparneytnu dísilvélunum, vel samsettur og allt er almennt létt, þægilegt og líklegt til að fá fólk til að njóta bílsins.

Um Citroën C5 hefur Top Gear meðal annars sagt að hann sé afslappandi með eindæmum, með stýrisátak svo létt að það minni á helíum-froðu, silkimjúkar vélar að ógleymdri hinni fínu vökvafjöðrun sem þurrki út allar ójöfnur á vegum. Ekki slæmur dómur það.

Telegraph í Bretlandi hefur sagt að Citroën sé leiðandi í nýbreytni. Telegraph staðfestir til dæmis þau góðu áhrif á andlega heilsu fólks sem Citroën segir að Zenith framrúðan í Citroën C3 hafi. Zenith framrúðan er í raun risastór framrúða sem nær nánast alla leið að aftursætunum en með henni er öll rýmistilfinning í bílnum gjörbreytt og akstursupplifunin sömuleiðis.

Nú gefst Íslendingum tækifæri til að reyna gæði Citroën C3 og Citroën C5. Brimborg frumsýnir bílana á laugardaginn milli kl. 12 og 16. Kaffi og með því verður á staðnum. Sjáðu Citroën.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli