Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | þri. 28. jún. 2011

Góður árangur hjá Citroën í Grikklandi

Mun Citroën DS3 WRC færa Citroën sjötta heimsmeistaratitilinn?
Þrátt fyrir að helstu fregnir frá Grikklandi þessa dagana séu af efnahagslegum hamförum gengur lífið sinn vanagang á mörgum öðrum vígstöðvum. Það á í það minnsta við um heimsmeistarakeppnina í rallakstri en síðasta mót var í Grikklandi þar sem Sébastien Loeb og liðsfélagi hans og nafni Sébastien Ogier náðu heilmörgum stigum.

Citroën rallliðið er eitt það sigursælasta í rallakstri frá upphafi og rallið í Grikkland var engin undantekning á sigurgöngunni. Sébastien Loeb leiðir stigakeppnina með 146 stig og Mikko Hirvonen á Ford Fiesta er með 129 stig. Citroën liðinu virðist ennfremur standa lítil ógn af Ford Abu Dhabi rallliðinu því Citroën leiðir með 250 stig á móti 195 stigum Ford. Liðið í þriðja sæti er einungis með 87 stig og því er ljóst að Citroën og Ford eru leiðandi í þessari vinsælu akstursíþrótt.

Hér má sjá áhugaverðustu punktana frá síðasta degi gríska rallsins.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli