Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | mán. 05. des. 2005

Citroën C2 VTS í Alien dulargervi

 

Það tók breytingasérfræðingana hjá SQ Plus heila sex mánuði að útbúa Citroën C2 VTS eins og geimfar úr Alien myndunum. Bíllinn er nú nánast óþekkjanlegur í útliti og útbúnaður bílsins að innan er hreint ótrúlegur. Bara lakkvinnan kostaði litlar 1.620.000 krónur eða svipað og nýr Citroën C2 VTS kostar hjá okkur í Brimborg. En langaði þig í þennan ævintýrabíl, sem hér um ræðir, þyrftir þú að greiðar tæpar sjö milljónir króna!

 

Í bílinn var meðal annars sett hljóðkerfi með samtals tuttugu hátölurum sem studdir eru hvorki fleiri né færri en ellefu mögnurum. Þetta ótrúlega hljóðkerfi framleiðir samanlagt tæp sextán þúsund wött, sem er svipað því og algengt er í meðalstórum næturklúbbi.


Örsmáum myndavélum var komið fyrir í bílnum í stað inni- og hliðarspegla, sem
endurvarpast á skjá í mælaborði bílsins. Skipt var um stýri bílsins (geimfarsins!) og í staðinn sett stýri eins og í þotu og sætin eru svipuð þeim sem eru í Formúlu 1 kappakstursbílunum. Undir herlegheitin voru síðan settar 20 tommu krómfelgur. Þetta er ótrúlegur bíll. Sjá nánar hér.


 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli