Smelltu á flokk

Citroën frétt 

23. febrúar 2012
Citroën | fös. 26. ágú. 2011

Citroën DS5 fær 5 stjörnur hjá Euro NCAP

Citroën DS5 skapar ný viðmið í lúxus og öryggi.

Hin þokkafulli Citroën DS5 mun eftir síðustu viðurkenningu, 5 stjörnur frá Euro NCAP, reynast þýsku keppinautunum erfiður. Citroën ætlar sér að taka slaginn við BMW, Audi og Mercedes-Benz. Hlaðin lúxusbúnaði og útbúin innréttingum sem eru ekki einungis vandaðar heldur afar glæsilega hannaðar mun Citroën færa viðmiðið enn ofar og bjóða raunverulegan valkost við hina þýsku naumhyggju sem oft er ráðandi í flokki lúxusbíla.

Öryggi skiptir orðið verulegu máli í öllum gerðum bíla. Fyrir þá sem eru mjög meðvitaðir um öryggi er notalegt að vita til þess að Citroën DS5 hlaut 97% skor fyrir öryggisbúnað sem aðstoðarbúnað. Sá árangur er einstaklega góður. Bíllinn er úrbúinn myndavél sem fylgist með hvort ökumaðurinn heldur sig ekki áreiðanlega á réttri akrein. Þá er sama myndavél nýtt til að stýra sjálfkrafa háu og lágu ljósum bílsins eftir þörfum. Ein nýstárlegasta tæknin, sem þó er ekki ný af nálinni, er hið svokallaða head up display sem varpar mikilvægustu upplýsingum um kerfi bílsins, hraða, hraðatakmörkunum og öðrum upplýsingum úr leiðsögukerfi bílsins á framrúðuna.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli