Citroën eru á meðal áreiðanlegustu bíla í dag og njóta þeir þess orðspors einna best hjá nágrönnum okkar Dönum en einnig hjá andfætlingum okkar í Ástralíu. Þar býr Citroën að góðu þjónustukerfi líkt og hér á Íslandi en góð þjónusta er lykillinn að rekstrarhagkvæmni til langs tíma.
Í frétt whatcar.com er vitnað í áreiðanleikakönnun JD Power Survey 2011 en þar kemur fram að Citroën bílar komi vel út. Áreiðanleiki efsta bílsins á lista er 85,4% en Citroën C3 Picasso er til að mynda með 83,1% og Grand C4 Picasso er með 82,5% áreiðanleika og C4 Picasso litlu neðar.
Á heimasíðu Warranty Direct má einnig sjá að Citroën bílar eru almennt að koma vel út bæði í bilanatíðni og kostnaði. Sem dæmi má nefna að fjöldi Citroën bíla raða sér í sætin fyrir ofan einn vinsælasta bílinn á Íslandi, Toyota Landcruiser, sem þykir mjög áreiðanlegur bíll.
Hafa skal það hugfast að þegar tekið er tillit til góðs staðalbúnaðar og framandlegs tæknibúnaðar er árangur Citroën sérstaklega góður. Efstu sætin verma yfirleitt venjulegir bílar sem eru snauðir af búnaði.
Nýr Citroën C4 sýndur
Nýr Citroën C4 sem nú verður sýndur í fyrsta skiptið býr yfir ríkulegum staðalbúnaði. C4 er örugglega með best búnu bílum í þessum flokki, tvívirkri tölvustýrðri miðstöð með loftkælingu, ESP stöðugleikastýrikerfi, ASR spólvörn, Hraðastillir, 5 stjörnum hjá EuroNcap og með hinni ofur sparneytnu 1,6 Hdi dísilvél. Með dísilvélinni fær C4 einnig frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur.
HDi vélar Citroën hafa sannað sig fyrir löngu. Danir kaupa til að mynda tvisvar sinnum fleiri Citroën C4 dísilbíla en bensínbíla. Danir eru líka þekktir fyrir skynsemi í bílakaupum þar sem bílar í Danmörku kosta skildinginn.
Komdu á Citroën sýningu í Brimborg, Bíldshöfða 8, á laugardag 29. október á milli kl. 12 og 16. Fáðu kaffi og croissant og þú munt áreiðanlega prófa Citroën eftir nánari skoðun.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.