Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | mán. 28. feb. 2005

Citroën C1 lofar góðu

Citroën kynnti á bílasýningunni í Genf nýja gerð smábíls sem þeir kalla C1. Bílinn er hannaður í samvinnu Citroën, Peugeot og Toyota og kemur á markað í evrópu á þessu ári. Það er til marks um gæði Citroën að Toyota skuli taka upp samvinnu við þetta heimsfræga vörumerki um hönnun og framleiðslu á þessum bíl. Það er ekki síst vegna þess hve framarlega Citroën stendur í hönnun smábíla og dísilvéla sem áhugi kviknaði hjá Toyota. Spennandi verður að fylgjast með þessum nýja bíl.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli