Óhætt er að segja að mikill kraftur einkenni Citroën þessa dagana. Aðeins örfáum mánuðum eftir að hafa kynnt hugmyndabílinn C-Airlounge hefur Citroën kynnt annan nýjan hugmyndabíl sem er jafnvel enn glæsilegri. Gárungarnir segja að þarna gæti verið komin næsta kynslóð af C3 Pluriel. Bifreiðina kallar Citroën, C-Airplay en eins og nafnið gefur til kynna er bíllinn mjög opin, með opnanlegum topp og eins er gler í miklu aðalhlutverki. Sannkallaður glæsivagn.
Lestu meira og skoðaðu fleiri myndir af Citroën C-Airplay hér.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.