Brimborg hefur í desember fengið frábærar viðtökur við jóla- og afmælistilboðum Citroën. Mikill fjöldi Citroën hefur selst og var Citroën meðal tíu söluhæstu fólksbíla landsins í desember og í níunda sæti ef sendibílar eru taldir með (skv. tölum til 26.12.05). Vinsældir Citroën fara stöðugt vaxandi. Nú fer hver að verða síðastur því jóla- og afmælisverð Citroën gildir til 6 janúar. Komdu í Brimborg og skoðaðu nýjan Citroën.
Brimborg endurkynnti Citroën í nóvember 2000 en fram að því hafði Citroën ekki verið á markaði hér á landi í 8 ár. Á þeim 5 árum sem liðin eru frá endurkomu Citroën hafa viðtökur landsmanna við Citroën verið framar vonum. Á þessu ári hafa verið afhentir yfir 500 Citroën bílar til ánægðra kaupenda. Það er stærsta ár Citroën á Íslandi frá því saga þess hófst hér á landi og á síðustu 5 árum hefur Brimborg afhent yfir 1400 Citroën bíla hér á landi.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.