Citroën er kominn fram með enn eitt djásnið; fallegan fjölskyldubíl, sem tilbrigði við C4. Nú C4 Picasso, vitnisburð um ótrúlega hæfileika hönnuða hjá Citroën til að koma fram með fallegar línur. Ekki aðeins er C4 Picasso glæsilegur í útliti eins og C4 Coupé og Saloon, heldur einnig afar rúmgóður, fjölhæfur og fullur af snilldarlegum nýjungum. C4 Picasso er fjölnotabíll fyrir fjölskylduna.
Þeir hjá Auto Express fóru nýlega í bíltúr og C4 Picasso með 2,0 l vélinni og voru þrælánægðir með þægindin, viðbragð vélarinnar og vinnsluna með 6 gíra hálfsjálfskiptingunni, eyðsluna og rýmið að innan, sem er yfirdrifið. Á markaðinn er einnig væntanleg 1,6 l díselvél sem gert er ráð fyrir að verði mjög vinsæl á meginlandinu.
Meðal hagkvæmra möguleika má nefna að unnt er að fella öll aftursæti alveg niður í gólfið með auðveldum hætti til að fullnýta flutningsmöguleika bílsins til hins ýtrasta. Úr verður 1.951 lítra flutningsrými. Þá eru ljós undir útispeglunum til að auðvelda aðgengi í myrkri og marft fleira.
Í nýlegum árekstraprófunum EuroNCAP-samtakanna fékk Citroën C4 Picasso hæstu einkunn, fimm stjörnur, fyrir öryggi ökumanns og framsætisfarþega og þrjár stjörnur fyrir öryggi aftursætisfarþega.
Sjá umfjöllun Auto Express HÉR.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.