19. maí 2012
Citroën
|
mán. 20. nóv. 2006
Loeb búinn að tryggja sér titilinn
Sebastien Loeb á fleygiferð
Þegar aðeins ein keppni er eftir í Heimsmeistarakeppninni í rallakstri munar ellefu stigum á þeim Sebastien Loeb frá Frakklandi, sem ekur á Citroën, og Marcus Grönholm frá Finnlandi, sem ekur á Ford Focus. Loeb leiðir stigakeppni ökumanna með 112 stig en Grönholm hefur 101 stig í öðru sæti og þar sem einungis er hægt að fá tíu stig í hverri keppni er ljóst að sá finnski getur ekki náð Loeb. Hann hefur því tryggt sér sigurinn í keppni ökumanna þriðja árið í röð og í ár er afrekið enn meira en áður þar sem hann hefur ekki getað keppt í síðustu þremur keppnum vegna handleggsbrots sem hann hlaut þegar hann féll af fjallahjóli sínu í hjólatúr í Sviss.
Forskotið kom sér vel
Loeb var í algjörum sérflokki í upphafi tímabilsins, vann átta af tólf fyrstu keppnunum, og náði snemma 29 stiga forskoti á næsta mann sem var Finninn fljúgandi. Og eins og áður hefur komið fram veitti ekki af því þar sem Loeb meiddist þegar þrjár keppnir voru eftir og ljóst að tímabilinu er lokið hjá honum. Þá átti Grönholm möguleika að ná Frakkanum, með því að vinna allar keppnirnar sem eftir voru, en í Ástralíurallinu velti hann bíl sínum snemma og lenti í fimmta sæti. Þar með var ljóst að hann gæti ekki náð Loeb að stigum.
“Ég var mjög reiður sjálfum mér eftir að hafa lent í slysinu og gat ekki keppt meira en sem betur fer höfðum við byggt upp verðmætt forskot. Það hefur verið einstaklega pirrandi að sitja heima og fylgjast með keppninni á netinu, en nú líður mér vel,” sagði Loeb að Ástralíurallinu loknu.
Hefur slegið Sainz við
Sebastien Loeb sem er 32 ára er einn allra sigursælasti rallari sögunnar. Hann hefur eins og áður sagði unnið keppni ökumanna þrjú ár í röð. Hann þykir óvenjulega mikill hæfileikamaður en til marks um það er að hann tók ekki að keppa í ralli fyrr en árið 1998, þá 24 ára gamall. Til samanburðar má geta þess að Grönholm var 21 árs þegar hann keppti fyrst í Heimsmeistarakeppninni í ralli og þangað komast menn ekki beint af götunni. Loeb hefur unnið 28 keppnir í heimsmeistarakeppninni og hefur enginn leikið það eftir. Næst sigursælastur er spænska goðsögnin Carlos Sainz.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Sebastien Loeb á fleygiferð í Citroën bíl sínum.