Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | mið. 25. maí 2005

Citroën skorar vel

C1 er nýjasta afkvæmi Citroën og er minnsti bílinn frá þessum heimsþekkta framleiðanda. Hann var hannaður með skýr markmið í huga og mátti ekki vera lengri en 3,43 metrar svo auðvelt væri að leggja honum í þröng stæði og léttleiki væri tryggður sem myndi tryggja litla mengun og aukna sparneytni. Þrátt fyrir þetta mátti ekki slaka á gæðum eða aksturseiginleikum.  

Markmiðin náðust um lítið umfang, litla mengun og aukna sparneytni. Og þegar að erfiðasta öryggisprófinu, EuroNCAP, kom stóðst C1 það með sóma og fékk hvorki meira né minna en 4 stjörnur – sömu einkunn og Citroën C2 og Citroën C3. Citroën C1 kom einnig vel út þegar öryggi barna var kannað þar sem hann fékk þrjár stjörnur. Þá fékk C1 tvær stjörnur fyrir öryggi gangandi vegfarenda.

 Brimborg vinnur nú að því að geta boðið aðdáendum Citroën þennan einstaka bíl en sökum gífurlegrar eftirspurnar á stærri mörkuðum er ekki víst að fyrstu bílar verði hér á landi fyrr en á næsta ári.  

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli