Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fös. 22. des. 2006

Top Gear með C4 Picasso og C6

Á árlegri verðlaunahátíð hins vinsæla breska tímarits Top Gear, sem haldin var í byrjun mánaðarins, fékk Citroën tvenn verðlaun. Flaggskipið C6 var kjörinn „forstjórabíll ársins 2006“, sem staðfestir enn frekar sterka stöðu þessa bíls í flokki eðalvagna, og C4 var kjörinn „fjölskyldubíll ársins 2006“ vegna frumlegrar hönnunar.

C6 fyllir mann uppreisnaranda

Tímaritið Top Gear, sem einnig heldur úti samnefndum þætti í bresku sjónvarpi og fjölmargir þekkja hér á landi sagði að Citroën C6 léki „ekki samkvæmt hefðbundnum reglum um lúxusbíla, það er því kærkominn og ferskur vindur sem bíllinn ber með sér í lúxusbílaflokkinn. Það er unun að horfa á bílinn og sem ökumaður fyllist maður einhvers konar uppreisnaranda! Hvaða hefðbundni lúxusbíll hefur slík áhrif á mann sem C6 gerir? Það er mat dómnefndarinnar að það sé enginn.

C4 Picasso leggur álög á þig

Citroën C4 Picasso, sem kjörinn var fjölskyldubíll ársins 2006, er að mati Top Gear svo hugvitsamlega hannaður að „hann leggur álög á þá sem kynnast honum. C4 Picasso mætir þörfum fjölskyldna með betri og hnitmiðaðri hætti en nokkur annar bíll sem enn hefur verið framleiddur. Við tökum hattinn ofan fyrir stjórnendum Citroën fyrir að hafa gefið hönnunarteymi sínu frjálsar hendur til að sýna hvað í því býr vegna þess að útkoman gleður fjölskyldur um allan heim.“

Citroën var eini bíllinn sem fékk tvenn verðlaun á þessu ári enda fékk merkið veglega umfjöllun í desemberblaði Top Gear, með bæði C4 og C6 á forsíðu.

Sjáðu myndband um C4 Picasso.

Sjáðu myndband um C6.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli