Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | þri. 09. jan. 2007

Fimm sæta C4 Picasso væntanlegur

Fimm sæta C4 Picasso verður brátt kynntur
Fimm sæta C4 Picasso verður brátt kynntur
Í kjölfar kynningar á hinum geysivinsælu Citroën Picasso bílum á undanförnum misserum heldur Citroën áfram þróun sinni á þessari rúmgóðu gerð bíla því innan tíðar verður kynnt til leiks þriðja tilbrigðið í Picasso fjölskyldunni. Um er að ræða fimm sæta C4 Picasso, sem bætist við hlið hins nýlega kynnta sjö sæta C4 Picasso og hins vel þekkta Xsara Picasso.

Himnasending fyrir fjölskyldufólk

Nýi fimm sæta Picasso bíllinn ber sjö sæta bróður sínum fagurt vitni með fallegum ytri línum og miklu plássi í farþegarými, sem er eitt það mesta í þessum flokki og ótvírætt meðal ástæðna fyrir velgengni bílsins á mörkuðunum. Evrópskt fjölskyldufólk og aðrir, sem annað hvort vilja eða kjósa mikið rými í meðalstórum bíl sem verðlagður er á sanngjarnan hátt, hafa einmitt tekið Picasso bílunum eins og himnasendingu.

Nánari upplýsingar

Greinar

  • Í breska blaðinu Independent birtist frétt í október sl. undir heitinnu „The new C4 Picasso is a masterpiece of safety“ og fjallar um niðurstöður öryggiskönnunar Euro NCAP. Smelltu HÉR til að lesa greinina.
  • HÉR er sagt frá því þegar Auto Express prófaði sjö sæta C4 Picasso.
  • Áhugaverð úttekt Ágústs Ásgeirssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, á sjö sæta C4 Picasso, sem hann prófaði í S-Frakklandi. Smelltu HÉR.

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli