Á bílasýningunni sem nú stendur yfir í Genf sýnir Citroën sérbyggðan C-Crosser eyðimerkurbíl til minningar um að árið 1922 var Citroën vörubíl ekið yfir Sahara-eyðimörkina í N-Afríku, næst stærstu eyðimörk veraldar. Jafnframt er þess minnst að tveimur árum síðar var samskonar bíl ekið eftir endilangri Aríku. Bíllinn var sérbúinn og voru leiðangrarnir farnir til þess að vekja athygli á Citroën-merkinu.
Smelltu hér til að lesa umfjöllun FÍB um eyðimerkurævintýri Citroën.
Nýir Citroën bílar
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.