Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | fös. 13. apr. 2007

Citroën framleiðir mismunandi útfærslur umhverfisvænni bíla

Citroën C4 nýtir hvort sem er hreint bensín eða blöndu þess og etanóls, t.d. E85
Citroën C4 nýtir hvort sem er hreint bensín eða blöndu þess og etanóls, t.d. E85
Citroën hefur lengi gefið umhverfismálum sérstaka eftirtekt enda sleppir meira en helmingur Citroën bíla í Evrópu nú þegar minna en 140 grömmum koltvísírings (CO2) á hvern ekinn kílómetra og enginn Citroën í smábílaflokki með HDi díselvél sleppir meira en 120 grömmum hvern á kílómetra. Citroën vill vera í fararbroddi í framleiðslu kraftmikilla bíla sem virða náttúruna á besta fáanlega verðinu.

Citroën tvíorkubílar afar vinsælir í Brasilíu

Á EVER sýningunni í Mónakó, sem haldin var dagana 29. mars til 1. apríl, um endurnýjanlega orku sýndi Citroën nýja Citroën C4 Bio flex tvíorkubílinn sem nýtir hvort sem er bensín eða blöndu etanóls og bensíns, í hlutföllunum allt frá 0 til 85 prósenta etanóls. Bæði Citroën C3 og Citroën Xsara Picasso eru komnir með tvíorkuvélar í Brasilíu þar sem slíkir bílar vega orðið afar hátt hlutfall í heildarsölunni á markaðnum.

20% minni koltvísýringslosun

Annar bíll sem nefna má frá Citroën er Citroën C3 CNG, sem notar aðallega náttúrulegt gas en getur einnig notað metangas sem sleppir hvorki brennisteinsýru né blýi út í andrúmsloftið. Minnkar þar með koltvísýringslosunin um 20% miðað við venjulega bensínvél. Í samstarfi við franska gasfélagið Gaz de France er nú boðið upp á þá þjónustu víða í Frakklandi að setja upp gasdælur við heimili sem auðveldar mjög áfyllingu bílanna.

Blanda jurtaolíu og díselolíu

Þá má nefna Citroën C1 Hdi 55 sem er afar sparneytinn og sleppir auk þess aðeins 109 grömmum koltvísýrings á hvern ekinn kílómetra. Eins og allir díselbílar frá Citroën getur C1 Hdi 55 gengið fyrir díselblöndu þar sem hlutfall jurtaolíu methyl ester getur verið allt að 30%.

Citroën Stop &Start

Að síðustu að sinni má svo nefna tvíorkubílana Citroën C2 og Citroën C3 Stop & Start, sem minnka koltvísýringsútblástur um 10% í borgarakstri og allt að 15% í umferðarhnútum.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli