Stöðugleikastýrikerfi (ESC) í bílum er það öryggistæki sem rannsóknir sýna fram á að bjargi flestum mannslífum ásamt öryggisbeltum. Árið 2009 verða allir Citroën fólksbílar frá Brimborg komnir með búnaðinn sem staðalbúnað nema Citroën C1, þríburi Toyota AYGO og Peugeot 107. Ekki er gert ráð fyrir að ESC verði boðinn í þeim bíl enda er hann fyrst og fremst ætlaður til notkunar í stórborgum, þar sem umferðarhraði er að jafnaði hægari en á hraðbrautum.
Citroën hjá Brimborg með ESC
Þeir nýju fólksbílar Citroën frá Brimborg, sem nú eru búnir stöðugleikastýrikerfi, eru Citroën C4, C4 Picasso, C5 og C8. Árið 2009 bætast í hópinn Citroën C2, C3 og Berlingo MSP.
Mesti heilbrigðisvandinn
Nú er talið að umferðarslys séu einn mesti ef ekki mesti heilbrigðisvandinn hér á landi. Hlutfall allra bílgerða með stöðugleikastýrikerfi í sölu hjá Brimborg er nú 72%, sem er nálega helmingi hærra hlutfall en að meðaltali í Evrópu þar sem það er 42%. Ástæða hærra hlutfalls hjá Brimborg má rekja til þess að í kjölfar niðurstaðna á rannsóknum sem sýndu fram á mikla kosti stöðugleikastýrikerfis hóf Brimborg markvissa áætlun um innleiðingu búnaðarins sem staðalbúnaðar í þær fólksbílgerðir sem fyrirtækið selur.