Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fös. 08. jún. 2007

Citroën C4 Grand Picasso er listaverk

Nýr 7 manna C4 Grand Picasso er ekta Citroën
Nýr 7 manna C4 Grand Picasso er ekta Citroën

‘Hafi manni einhvern tíma liðið eins og maður væri að koma sér fyrir í framsæti lítillar þyrlu við að setjast inn í bíl gerðist það þegar ég steig um borð í C4 Picasso’. Svo komst blaðamaður Morgunblaðsins m.a. að orði í grein sinni um nýtt listaverk frá Citroën; Citroën C4 Grand Picasso, þegar hann reynsluók bílnum sl. haust í Frakklandi.

Óhindrað útsýni

Og hann hélt áfram: ‘Slíkt er glerið allt um kring og óhindrað útsýni fram, upp og til hliðanna, þótt rýmið sé mun meira í bílnum en þyrlu. Og það sem á eftir kom, sjálfur tilraunaaksturinn um fagrar sveitir í Suður-Frakklandi, var hrein unun. Ásamt því að vera listaverk að allri hönnun og búnaði virðist bíllinn eftir þau kynni ekki aðeins spengilegur og móðins heldur auk þess einkar meðfærilegur og stimamjúkur; fyrirtaks fjölskylduþjónn.’

Frumsýning

Laugardaginn 16. júní höldum við tískusýningu á nýjasta listaverki frá smiðju Citroën. Munaður, glæsileiki, formfegurð og í raun íburður flæða um fallegar línur Citroën C4 Grand Picasso – enda borinn í landi heimstískunnar – og enda líka alvöru lúxusbíll fyrir þá sem vilja láta fara virkilega vel um sig og njóta þess besta.

Ekta Citroën

Nýr 7 manna C4 Grand Picasso er ekta Citroën og búinn þægindum sem þú gerir kröfu um í lúxusbíl.

  • Unaðsleg sæti og öftustu sætin hverfa ofan í gólf utan notkunar. 
  • Kælir fyrir drykki.
  • Eitt inniljósanna er jafnframt vasaljós.
  • Fjögur hitastýrð svæði fyrir persónulegar stillingar.
  • Mikið farangursrými.
  • Útsýni sem er engu líkt. Þú verður að upplifa.

Komdu 16. júní

Við segjum ekki meir að sinni. Þú verður að koma 16. júní og upplifa franskan munað og fegurð frá landi hátískunnar. Komdu í Brimborg Reykjavík 16. júní og njóttu þess besta með okkur. Opið verður frá kl. 12 til 16.

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli