Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fim. 14. jún. 2007

Listaverkið Citroën C4 Grand Picasso frumsýndur

Útsýni eins og úr þyrlu segir blaðamaður
Útsýni eins og úr þyrlu segir blaðamaður
Brimborg frumsýnir á laugardag, 16. júní, nýjan 7 manna bíl; Citroën C4 Grand Picasso. Síðan þessi nýi bíll leit dagsins ljós seint á síðasta ári á meginlandinu hafa menn farið hamförum í aðdáun sinni á bílnum. Slíkur er glæsileikinn og þægindin í þessum rúmgóða og bjarta sjö manna fjölskyldubíl.

Afar jákvæð umfjöllun

Meðal annars sagði blaðamaður Morgunblaðsins í umsögn sinni um bílinn, er hann ók honum um fagrar sveitir Frakklands, að sér hefði liðið eins og í þyrlu, slíkt hefði útsýnið verið. Sjálfur aksturinn var hrein unun. „ Ásamt því að vera listaverk að allri hönnun og búnaði virðist bíllinn eftir þau kynni ekki aðeins spengilegur og móðins heldur auk þess einkar meðfærilegur og stimamjúkur; fyrirtaks fjölskylduþjónn.“

Komdu á tískufrumsýningu

Líttu við í Brimborg Reykjavík á laugardaginn kemur milli kl. 12 og 16, njóttu nýlagaðs kaffis og nýrra croissantbrauðanna meðan þú virðir fyrir þér nýtt listaverk frá landi hátískunnar; Citroën C4 Grand Picasso. Prófaðu!

Ekta Citroën

Nýr 7 manna C4 Grand Picasso er ekta Citroën og búinn þægindum sem þú gerir kröfu um í lúxusbíl.

  • Unaðsleg sæti og öftustu sætin hverfa ofan í gólf utan notkunar.
  • Kælir fyrir drykki.
  • Eitt inniljósanna er jafnframt vasaljós.
  • Fjögur hitastýrð svæði fyrir persónulegar stillingar.
  • Mikið farangursrými.
  • Útsýni sem er engu líkt. Þú verður að upplifa. Komdu 16. júní

Við segjum ekki meir að sinni. Þú verður að koma í Brimborg, Reykjavík, á laugardaginn kemur,16. júní, og upplifa franskan munað og fegurð frá landi hátískunnar. Komdu og njóttu þess besta með okkur. Opið verður frá kl. 12 til 16.

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli