Mikið notagildi og lágur rekstrarkostnaður einkenna atvinnubílinn Berlingo Van frá Citroën
Sendibíllinn Citroën Berlingo Van var nýlega kosinn Sendibíll ársins í Ástralíu af tímaritinu Delivery, sem er leiðandi tímarit þar í landi og sérhæfir sig í sendi- og flutningabílum. Segir Chris Mullett, ritstjóri blaðsins, að helsta ástæða verðlaunanna sé mikið notagildi og lágur rekstrarkostnaður bílsins.
Lágur rekstrarkostnaður
„Með Citroën Berlingo Van færðu mest fyrir peningana í bíl sem er mjög samkeppnishæfur í sínum flokki á sendibílamarkaðnum. Mikil þægindi fyrir ökumann og farþega, stöðugleiki á vegi ásamt lítilli eldsneytiseyðslu gera bílinn afar ákjósanlegan sem atvinnubíl til flutninga í þéttbýli,“ segir Mullett.
Miklar vinsældir
Citroën Berlingo Van hefur notið mikillar hylli á sendibílamarkaði síðan bíllinn kom á markað 1996. Tæplega tvær milljónir eintaka hafa verið framleidd fyrir markaði um allan heim.