Jónatan Jóhann Stefánsson leigubifreiðastjóri endurnýjaði nýlega leigubílinn sinn úr notuðum bíl frá Brimborg í glænýjan silfurgráan Citroën C5 station. Jónatan er svo ánægður með sína nýju frönsku gæðabifreið og hefur fengið svo jákvæð viðbrögð frá farþegum og félögum að til að setja punktinn yfir i-ið ákvað hann að panta sér einkanúmer. Og hvaða áletrun skyldi hafa orðið fyrir valinu á nýja einkanúmerið? Auðvitað C5!
Jónatan segir að einkanúmerið hafi slegið í gegn og vakið mikla athygli, en aðalatriðið sé að Citroën C5 sé mjög hentugur í farþegaflutningum og fullkominn leigubíll þar sem hann sé einstaklega rúmgóður og þægilegur í að sitja og með einstaka aksturseiginleika. „Bíllinn er bara einstakur. Hann er sérlega vandaður og þægilegur í akstri, mjúkur og öruggur. Svo er hann líka bæði fallegur og virðulegur“. Jónatan segir það mjög gefandi fyrir sig sem bílstjóra að vera á svo vönduðum bíl og að það auki mjög á alla starfsgleði. „Allur akstur verður líka enn ánægjulegri fyrir farþegana, hvort sem er á lengri eða styttri ferðum“ bætir hann við.
Rúsínan í pylsuendanum er svo ákaflega rúmgott farangursrými. Jónatan ekur mikið milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar með komufarþega til landsins eða fólk á leið til útlanda. Hann er því ávallt viðbúinn ef dömur eða herrar hafa verið sérlega dugleg að versla í útlöndum. Það er greinilegt að Jónatan hefur mikla ánægju af því að aka um á svo vönduðum bíl í sínu starfi enda segir hann að lokum: „Ég á eiginlega engin orð til að lýsa þessum bíl. Það er eins og ég sé orðinn þrælástfanginn aftur!“.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.