Um leið og pantanir á C4 Picasso hlaðast upp fyrir flest fordæmi í bílasölu er þessi myndræni franski fjölnotabíll að verða að verðlaunaðasta farartæki Evrópu. Ballið byrjaði á því að breska bílablaðið Auto Express valdi C4 Picasso besta fjölnotabíl ársins og nú er hvert einasta bílablað sem stendur undir nafni búið að gera slíkt hið sama.
Hann var valinn fjölskyldubíll ársins af tímaritinu Top Gear og besti fjölnotabíllinn af bæði tímaritinu What Car? og bílablöðunum 4X4 og Driver. Svo útnefndi What Diesel Car tímaritið Citroën C4 Picasso ekki einungis sem besta fjölnotabílinn heldur sem bíl ársins í öllum flokkum.
„Citroën C4 Picasso er það besta sem hægt er að fá fyrir peninga“ útskýrði David Johns, ritstjóri Auto Express. „Það er ekki bara nútímalegt útlitið sem gerir hann að verðskulduðum vinningshafa – því hann er flottur jafnt innan sem utan. Þessi bíll er pakkfullur af ánægjulegum eiginleikum og lausnum í hönnun sem gerir hann að mjög skemmtilegum stað að vera á. Nefndu það og Citroën C4 Picasso hefur það“.
Verðlaun eru frábær en það er önnur viðurkenning sem 5 sæta Citroën C4 Picasso og 7 sæta Grand Citroën C4 Picasso hafa fengið í ofanálag sem er stærsta rósin í hnappagatið: Að vinna hjörtu kaupenda. Markaðurinn fyrir fjölnotabíla er í hraðasta vexti allra hluta bílamarkaðarins í Evrópu og ekkert útlit er fyrir að neitt lát sé á því. Hver einasti bílaframleiðandi þarf að bjóða bíla í þessum flokki til að vera með í vextinum og þessvegna sætir eindæma velgengni Citroën C4 Picasso þeim mun meiri tíðindum og er þeim mun ánægjulegri fyrir Citroën.
Hér geturðu skoðað Citroën C4 Grand Picasso nánar
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.