Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | mið. 22. ágú. 2007

Þýska rallýið: Citroën sigrar sjötta árið í röð

Sjötta árið í röð fagnaði mannfjöldinn Citroën ásamt Sébastian Loeb og Daniel Elena í lokaathöfninni fyrir framan fræga Porta Nigra-hliðið í Trier.

Enn og aftur reyndist hin forna borg Trier hamingjusamlega fengsæl fyrir Citroën, sem rúllaði upp sjötta sigrinum í þýska rallýinu (Rallye Deutchland). Sjötta árið í röð fagnaði mannfjöldinn Citroën ásamt Sébastien Loeb og Daniel Elena í lokaathöfninni fyrir framan fræga Porta Nigra-hliðið í Trier, sem áður var hluti Rómarveldis. Sébastien og Daniel voru að taka við verðlaunum á heimsskala í þrítugasta og þriðja skipti.

Nýtt met Citroën

Þetta var sjötti sigur Sébastien og Daniel í Trier, nýtt met. Og í öll sex skiptin unnu þeir sigrana á Citroën. „Citroën C4 sýndi sannarlega hæfileika sína á erfiðum veginum" segir Sébastian Loeb. „Við vissum áður en við byrjuðum að við þyrftum að ná aukastigum ef við ætluðum okkur að halda áfram í lokahrinuna. Mér hefur alltaf liðið vel í Þýskalandi svo þetta var frábær staður til þess að ná að bæta við sig stigum. Á sama tíma vildi ég alls ekki valda stuðningsfólki mínu sem kemur hingað til að sjá okkur á hverju ári, vonbrigðum. Þessvegna vorum við undir miklu álagi en við gátum höndlað það, ekki síst vegna þess að við fengum mjög dýrmætan stuðning frá öllum hjá Citroën Sport".

Lokakaflinn erfiður 

„Ég veit ég hef sagt þetta áður, en ekkert er búið fyrr en maður hefur keyrt yfir lokalínuna" bætir Sébastian við. „Rallý er ef til vill ófyrirséðasta greinin í mótorsporti. Lokakaflinn var gríðarlega erfiður og allir hjá Citroën Sport voru á meðan á þessu stóð og við vildum fyrir alla muni ná lokatakmarkinu. Það var frábært að við náðum að vinna sjötta árið í röð". Lokadagurinn fól í sér 63 kílómera leið þar sem keppendurnir þurftu að keyra í gegnum vínekrur Móseldalsins og forðast hvassar gangstéttabrúnir og beitta brautarteina í Trier.

Með François Duval á hælunum

„Með 37,8 stiga forskot á Marcus Grönholm í morgun sáum við enga ástæðu til að taka neina áhættu í dag" bætti Sébastien við eftir lokaathöfnina. „Við pössuðum okkur á að hafa ekki augun af hinum keppendunum og aðlöguðum okkur að hraðanum í samræmi við það. Með François Duval á hælunum hafði Marcus heldur ekki efni á því að taka neina áhættu og við létum hann ekki komast of nálægt okkur. Svona aðstæður eru aldrei auðveldar. Á sama tíma ertu með forskot á alla hina sem er auðvitað óskastaða! Ég reyndi að keyra á hámarkshraða miðað við aðstæður og halda hnífskörpum fókus til að gera engin mistök".

33. sigur Sébastians

Þessi þrítugasti og þriðji sigur Sébastians í heimsklassa rallýi hefur alveg sérstaka þýðingu fyrir þennan öfluga Frakka: „Það er alltaf gaman að vinna í þessu rallýi. Þetta er svo nálægt heimahögum mínum í Alsace í Frakklandi og það var hér sem ég vann fyrsta heimsmeistaratitilinn árið 2002. Fyrir utan það að velja röng dekk í einum riðli hefur allt gengið að óskum og bíllinn minn, Citroën C4 er í algjöru uppáhaldi hjá mér".


 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli