Jean Martin Folz forstjóri PSA Peugeot Citroen og Takashi Nishioka forstjóri Mitsubishi Motors hafa skrifað undir samkomulag um smíði nýs fjórhjóladrifsjepplings sem væntanlegur er árið 2007. Samningurinn gerir ráð fyrir smíði bílsins í Japan og að notaðar verði m.a nýjustu hátækni HDI díselvélar frá Citroën –Peugeot. Bílarnir sem allir verða með sínu útliti fyrir hvern framleiðanda verða fyrst og fremst ætlaðir á evrópumarkað en síðar er gert ráð fyrir sölu í öðrum heimsálfum. Í fréttatilkynningu framleiðandanna segir að hér sé aðeins um fyrsta skref að ræða í frekari samvinnu fyrirtækjanna.
Nýir Citroën bílar
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.