Í Frankfurt sýnir Citroën fjölda bíla. Í umhverfismálum er kynntur Citroën C4 BioFlex, sem nýtir hvort heldur sem er lífetanóleldsneytið E85 eða bensín. Einnig eru kynntir tveir hugmyndabílar; C-Cactus og C5 Airscape.
C-Cactus er fjögurra dyra milliflokksbíll sem væntanlegur er á markað 2010 en hann verður með rafmagnsmótor og lífdíselvél (hybrid HDi). C5 Airscape er rúmgóður lúxusbíll, sem sameinar háþróaða umhverfistækni og munað í akstri. Báðir þessir bílar, C-Cactus og Airscape, sýna glöggt sérþekkingu Citroën á tæknisviðinu og gefa góða vísbendingu um hvert Citroën stefnir á framleiðslusviðinu í framtíðinni.
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.