Smelltu á flokk

Citroën frétt 

06. febrúar 2012
Citroën | fim. 15. nóv. 2007

Citroën C4 Picasso fær + í langtíma prófi

„Alveg síðan í júní þegar hinn fjölhæfi fjölnotabíll, Citroën C4 Picasso bættist við bílaflotann okkar hér á ritstjórn Auto Express hefur hann bókstaflega tæklað allt sem við höfum látið hann þola“ segir Emma Hewson blaðamaður og kvikmyndatökukona bílatímaritsins fræga.

„Picasso á dag kemur skapinu í lag“ segir blaðakona breska bílablaðsins Auto Express í umsögn sinni um Citroën C4 Picasso, en eintak af þessum fjölnothæfa bíl er í eigu útgáfufélagsins sem gefur út hið virta breska bílablað. „Alveg síðan í júní þegar hinn fjölhæfi fjölnotabíll, Citroën C4 Picasso bættist við bílaflotann okkar hér á ritstjórn Auto Express hefur hann bókstaflega tæklað allt sem við höfum látið hann þola“ segir Emma Hewson blaðamaður og kvikmyndatökukona bílatímaritsins fræga.

C4 Picasso er rúmgóður og öruggur

„Yfirleitt er bílnum ekið af útgáfustjóranum, James Burnay. En sem tökumanneskju tímaritsins tókst mér að hnupla af honum lyklunum og fara á Citroën C4 Picasso héðan frá London yfir til Frakklands til að taka upp nýjar myndir fyrir vefsíðuna okkar. Þetta var 2.900-kílómetra ferðalag á aðeins þremur dögum og Citroën C4 Picasso tók við endalausu magni af ferðatöskum, þrífótum og öðrum tækjum og tólum sem ég tók með. Hann þaut svo fyrirhafnarlaust og af öryggi eftir frönsku hraðbrautunum“ segir hún hrifin.

Þægileg sæti, fullkomið ESP-stöðugleikastýrikerfi

Og Emma Hewson heldur áfram: „En það eru ekki bara vinnuferðalög sem liggja að baki þeim 12.500 kílómetrum sem við á ritstjórn Auto Express höfum ekið C4 Picasso síðan við fengum hann í júní. Dreifingarstjórinn okkar, Martin Belson fékk hann til dæmis lánaðan í prívatferðalag til Wales. Hann sagði mér að eftir þriggja tíma ferðalag hafi hann verið ferskur og óþreyttur – þökk sé þessum svakalega þægilegu frönsku bílsætum og þessu fullkomna ESP-stöðugleikastýrikerfi Citroën.“ Gott bil milli framsætanna tveggja gaf líka eiginkonu Martins auðvelt aðgengi að dóttur þeirra Daisy, í aftursætinu, en hún er þriggja ára og kunni vel að meta barnaefnið í innbyggða DVD-kerfinu. Og þrátt fyrir allt rýmið frammí og djúpa farangursgeymslu afturí fannst honum Citroën C4 Picasso smellpassa á hinar mjóu akreinar fjallveganna í Wales.“

C4 Picasso er tæknilegur, fjölhæfur, öruggur

Á síðustu dögum hefur hann verið notaður af framkvæmdastjóra viðburða hjá okkur, Jemma Ryan, til að safna saman skiltum og uppstillingardóti, tímaritum og áskrifendagjöfum í Birmingham þar sem Auto Express var með fjölmiðlasýningu. Með aftursætin felld niður var barnaleikur fyrir Jemma að koma öllu dótinu í bílinn og enn og aftur sló C4 Picasso í gegn. Á golfmóti nýlega þurfti blaðamaðurinn James svo að komast í gegnum suðurhluta London. Honum fannst kortin á skermi ratkerfisins mjög auðveld og þægileg í notkun og hann gat sloppið við mestu traffíkina með hjálp þessarar frábæru tækni. Ritstjórnin var sammála um að lykilorðin fyrir þennan snilldarbíl væru fjölhæfni og áreiðanleiki – að hann væri fjölhæft og öruggt tryggðartröll.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli