Smelltu á flokk

Citroën frétt 

08. september 2010
Citroën | mið. 28. nóv. 2007

Citroën C1 þriðji umhverfisvænsti bíll heims

Citoën C1 þriðji umhverfisvænsti bíll heims að mati Viðskiptaháskólans í Cardiff
Citoën C1 þriðji umhverfisvænsti bíll heims að mati Viðskiptaháskólans í Cardiff
Viðskiptaháskólinn í Cardiff (Cardiff University Business School) hefur birt skýrslu með lista yfir bíla, sem flokkaðir eru miðað við vægi þeirra á umhverfið með tilliti til stærðar og þyngdar. Athyglisvert er að Toyota Prius lendir neðst á lista skýrsluhöfunda yfir tíu umhverfisvænustu bílana á markaðnum.

Léttustu bílarnir eru bestir

Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar eru léttustu bílarnir umhverfishæfastir. Í annarri skýrslu frá sama skóla er fullyrt að bílaframleiðendur muni ekki eiga í neinum vandræðum með að uppfylla kröfur Evrópusambandsins um að hámarks útblástur koltvíoxíðs verði um 130g/km innan fárra ára.

Sífellt stærri og þyngri bílar

Höfundur skýrslunnar, dr. Paul Nieuwenhuis, sérfræðingur á sviði bílaiðnaðarins, segir að einn helsti þröskuldurinn í vegi markmiða ESB sé tilhneiging bílaframleiðenda til að framleiða sífellt stærri og kraftmeiri bíla.

Léttari og sterkari smíðaefna er þörf

Nieuwenhuis segir að það muni þurfa meira til en fleiri tvíorkubíla og fleiri tegundir eldsneytis til að draga úr myndun koltvíoxíðs í andrúmsloftinu frá stóru lúxusbílunum. Finna þurfi upp mun léttari efni sem nota megi til smíði stærri bíla en þau sem nú séu notuð.

Umhverfisvænastir

Samkvæmt Cardiff-skýrslunni, sem fyrr var nefnd, eru eftirfarandi bílar umhverfisvænastir:

  • Smart Roadster 
  • Smart Fortwo cabriolet 
  • Citroën C1 1.0i Peugeot 107 1.0i
  • Citroën C1 1.4 Hdi
  • Panda 1.2 Dualogic 
  • Ford Ka 1.3 Duratec 
  • Toyota Yaris 1.0 
  • Fiat Panda 100HP 
  • Peugeot 206 1.4 
  • Mini Cooper D 
  • Toyota Prius
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli