Smelltu á flokk

Citroën frétt 

19. maí 2012
Citroën | mán. 17. des. 2007

Nýi sendibíllinn Citroën Nemo senn á markað

Nemo er mjög praktískur og vel hannaður smásendibíll
Nemo er mjög praktískur og vel hannaður smásendibíll
Hinn nýi litli og knái sendibíll, Citroën Nemo, sem frumsýndur var opinberlega á bílasýningunni í Amsterdam í lok október síðastliðnum, kemur á markað í Evrópu snemma á næsta ári. Nemo leysir af hólmi hinn þaulreynda Club15 eða C15 eins og hann er nefndur, sem kom fyrst á markað 1984.

Eykur úrval í flóru sendibíla

Citroën Nemo er lítill sendibíll, heldur minni en hinn vinsæli Berlingo. Nemo eykur úrvalið í flokki lítilla fyrirtækja- og sendibíla, þar sem fyrir eru í Evrópu bræður hans C2 Enterprise, Berlingo, Dispatch og Relay. Er Nemo heldur stærri en C2 og aðeins minni en Berlingo. Dispatch er í flokki meðalstórra sendibíla og Relay í flokki stórra sendibíla. Með Nemo getur Citroën nú boðið stiglaust úrval mismunandi flutningsgetu og rýmis; allt frá 0,84 rúmmetrum til 17 rúmmetra.

Lipur og umhverfisvænn

Nemo nýtur sín best í þéttbýli, þar sem smæð hans, lipurð við þrengsli og lítill útblástur (aðeins 119 g/km á 1,4HDi vélinni) koma að góðu gagni og eru meðal bestu kosta hans.

Rúmgott hleðslurými

Nemo er aðeins 3,86 m að lengd, en hefur mjög rúmgott 2,5 rúmmetra hleðslurými sem nýtist til fulls. Hægt er að fella sætisbak farþegasætisins niður eða fella sætið í heild ofan í gólfið frammí. Eykst hleðslurými Nemo þá í 2,8 rúmmetra og hleðslulengd í 2,5 metra. Hleðslugetan er allt að 610 kg.

Bensín- og dísilvélar

Nemo er boðinn með 1,4 lítra 75 hestafla bensínvél og hinni afar visthæfu 70 hestafla 1,4 lítra HDi dísilvél, sem eyðir aðeins um 4,5 l/100km í blönduðum akstri. Með dísilvélinni verður unnt að fá bílinn með sjálfskiptingu, sem gerir Nemo sérlega spennandi kost sem vinnubíl í borgarumferðinni.

Rennihurðar á hliðum og tvöföld afturhurð

Þá er Nemo ekki síður hagkvæmur kostur fyrir þá sem vilja mikinn sveigjanleika við hleðslu því hægt er að velja Nemo með rennihurðum á annarri eða báðum hliðum auk tvöfaldrar hurðar að aftan, sem opnast í 180° til að auðvelda fermingu og affermingu. Gólfið er lágt og það gerir alla vinnu við bílinn enn þægilegri.

Praktísk hönnun stuðlar að lægri viðhaldskostnaði

Fegurð Nemos er gegnheil. Hönnun hans er sjarmerandi en líka mjög hagkvæm. Sem dæmi má nefna framendann. Þar er stuðarinn mjög framstæður og bæði fram- og afturljósum er komið fyrir ofarlega á bílnum svo þau skemmist síður við minniháttar árekstur. Þetta stuðlar að lægri viðhaldskostnaði og meiri rekstrarhagkvæmni. Þá er framrúðan áberandi stór sem eykur birtu og útsýni úr bílnum og stuðlar að auknu umferðaröryggi.

Fleiri kostir

Auk þeirra fjölmörgu kosta Nemo sem hér hafa verið nefndir má nefna: 

  • Hástæð gírstöng, nálægt stýri eykur þægindi við akstur 
  • Fjölmörg geymsluhólf 
  • Fjölstillanlegt ökumannssæti 
  • Vönduð hljómtæki með 4 hátölurum 
  • Möguleiki á Bluetooth

Nánari upplýsingar

Eins og áður segir kemur hinn nýi sendibíll, Citroën Nemo, á markað í Evrópu í upphafi næsta árs. Nánari upplýsingar um bílinn veita söluráðgjafar Brimborgar í síma 5157000.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli