Citroën hélt áfram sigurgöngu sinni í heimsmeistaramótinu um síðustu helgi. Nú var komið að þýska rallinu sem Citroën sigraði með glæsibrag. Sebastian Loeb og aðstoðarökumaður hans Daniel Elena leiða því enn keppni ökumanna með 93 stigum og töluverðum yfirburðum yfir Marcus Grönholm sem vermir annað sætið með 61 stig. Citroën leiðir einnig keppni framleiðanda með 123 stig, Peugeot er í öðru sæti með 117 stig og Ford í því þriðja með 72 stig. Skoðaðu heimasíðu Citroën Sport http://www.citroensport.com/
Veldu þá gerð af Citroën sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan.