Smelltu á flokk

Citroën frétt 

09. september 2010
Citroën | fim. 10. jan. 2008

Citroën C8 - ný kynslóð fjölnotabíla

Citroën C8, sem er ákaflega vinsæll víða í Evrópu vegna mikils staðalbúnaðar, öryggis og rýmis.
Citroën C8, sem er ákaflega vinsæll víða í Evrópu vegna mikils staðalbúnaðar, öryggis og rýmis.
Citroën er um þessar mundir að kynna nýja útgáfu af hinum vinsæla fjölskyldu- og fjölnotabíl, Citroën C8, sem er ákaflega vinsæll víða í Evrópu vegna mikils staðalbúnaðar, öryggis og rýmis. Nýi bíllinn er enn rúmbetri en áður og með enn sveigjanlegri notkunar- og aksturseiginleika. Bíllinn sækir framsækna hönnun sína til góðrar reynslu af fjölnota eiginleikum C4 Picasso og C4 Grand Picasso.

Nýjar innréttingar og meiri munaður

Umhverfi ökumanns og farþega hefur breyst mikið með nýjum innréttingum. Áhersla var lögð á fágaða áferð áklæðis og annara innréttinga og hafa þannig til dæmis hurðarlistar, stýrishjól, teppi, mottur og hluti mælaborðs fengið nýjan lit.

Viðbragðsgóður og hljóðlátur

Jafnframt kynningu á hinum nýja Citroën C8 kynnir framleiðandinn að auki nýja vél, 173 hestafla dísilvél með tvöfaldri forþjöppu við sex gíra beinskiptingu. Bíllinn er að sjálfsögðu búinn hinni nýju og háþróuðu DPFS smáagnasíu frá Citroën sem er einstök á sína vísu. Nýi bíllinn verður áfram boðinn með núverandi vélum í Evrópu, fjögurra strokka, tveggja lítra 143 hestafla bensínvélinni sem býðst við fimm gíra beinskiptingu eða fjögurra gíra sjálfskiptingu, og ennfremur 120 og 138 hestafla dísilvélunum sem báðar eru við sex gíra beinskiptan kassa.

Aukahlutir við akstur

Citroën býður fjölbreytt val um aukahlutabúnað með hinum nýja C8, svo sem bakkvörn og NaviDrive kerfi, sem er gps-leiðsögutæki með litaskjá og innbyggðu farsíma- og hljómflutningskerfi og tíu GB hörðum diski og Bluetooth.

Öryggið í fyrrrúmi

Við hönnun C8 var öryggi ökumanns og farþega haft að leiðarljósi. Meðal staðalbúnaðar má nefna ABS hemla ásamt EBA neyðarhemlunarbúnaði, TCS spólvörn og ESP stöðugleikastýringu. Að auki verður Citroën C8 á sumum markaðssvæðum boðinn með innbyggðum hraðatakmarkara í hraðastillinn og loftþrýstingsnema í hverju hjóli.

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli