Hinn nýi Berlingo er nú glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Citroën kynnir um þessar mundir nýja kynslóð af Berlingo, sem eins og kunnugt er er bæði boðinn sem sendibíll og einkabíll. Berlingo hefur verið afar vinsæll um langt árabil og einn söluhæsti sendibíllinn í heiminum í sínum flokki, þar af söluhæstur í sautján Evrópulöndum síðan 2003. Tæplega tvær milljónir bíla hafa verið framleiddar fyrir markaði um allan heim.
Fjölnota fjölskyldubíll
Sem fjölskyldubíll býður Citroën Berlingo Multispace einstök þægindi samhliða miklu notagildi og útfærir nýi bíllinn núverandi styrkleika hans enn frekar. Má sem dæmi nefna að sætin hafa aldrei verið eins þægileg og nú. Auðvelt er að fjarlægja sætin aftur í og stórauka þannig farangurs- eða flutningsrýmið. Sú staðreynd hefur því ekkert breyst að með kaupum á Citroën Berlingo Multispace færðu í raun tvo bíla á verði eins.
Notadrjúgur sendibíll
Sendibíllinn Citroën Berlingo Van býður rekstraraðilum mikið rými og hagkvæmni í rekstri. Framsætin eru há, breið og rúmgóð. Stýrið er þjált í notkun og fjölstillanlegt. Á þaki er opnanlegur hleri til að unnt sé að flytja langa hluti, svo sem timbur eða stiga. Flutningsrýmið er 3.300 lítrar og burðargetan 850 kg. Með því að leggja niður framsæti er unnt að flytja allt að þriggja metra langa hluti í bílnum. Í þessum flokki sendibíla standast fáir Citroën Berlingo Van snúning þegar kemur að notagildi og hagkvæmni í rekstri. Möguleikarnir eru nánast óþrjótandi.