Smelltu á flokk

Citroën C1 • Um C1 

06. febrúar 2012
Skoða PDF: C1 bæklingur

Töfrandi borgarbíllinn

Upplifðu stóra smábíllinn Citroën C1. Vinalegur bíll sem er líka sterklegur og traustur. Sjáðu Citroën. Fáðu þér kvikan og skemmtilegan stóran smábíl sem þú getur lagt hvar sem er.

Nýsköpun, tækni og hönnun eru kjörorð Citroën og Citroën C1 ber þess merki að lögð hefur verið áhersla á þessa þætti. Citroën C1 er fyrir meðvitað fólk sem kann að meta gæði.


Farþegarýmið er nýtískulegt, frumlegt og fágað og endurspeglar heildarhönnun bílsins. Stærð rýmisins kemur á óvart miðað við stærð bílsins, sem er 3,43 m langur, 1,63 m breiður og 1,47 m hár.

Citroën C1 er fyrir fólk af öllum stærðum og gerðum. Nægt olnbogarými og hæð tryggja þægindin og farþegar í aftursæti hafa nægt fóta- og höfuðrými.

Hér er kominn léttur og lipur bíll sem er sérhannaður fyrir innanbæjarakstur. Hann er lítill að utan en stór að innan. Þú verður ekki í nokkrum vandræðum með að skjótast í bæinn, að versla, með börnin á æfingu eða í og úr vinnu á stóra smábílnum Citroën C1.

Citroën C1 er heillandi og frumlegur bíll með karakter. Vökvastýring sem gerir bílinn einstaklega lipran í bæjarakstri er staðalbúnaður og loftkæling er fáanleg sem aukabúnaður.

Öryggið í fyrirrúmi

Öryggi í C1 er tryggt í hvívetna. Yfirbyggingin er sérstaklega styrkt til að vernda farþega við árekstur. Bíllinn er búinn sex loftpúðum og afar skilvirku bremsukerfi.

Diskabremsur að framan, ABS bremsukerfi með EBD hemlajöfnun og CSC (cornering stability control) auka öryggi við nánast hvaða aðstæður sem er. Þá er hægt að fá ESP stöðugleikastýrikerfi sem aukabúnað..

Citroën C1 er lipur og sparneytinn enda er hann hluti Airdream línu Citroën. Í henni eru aðeins vistvænustu Citroën bílarnir með vistvænustu vélunum og fylla allar útgáfur Citroën C1 þau skilyrði.

Citroën C1 uppfyllir einnig öll skilyrði Reykjavíkurborgar til að fá frítt í stæði í 90 mínútur í senn. Sérstök bílastæðaskífa fylgir sérlega visthæfum bílum sem standast kröfur um sparneytni og útblástur. Söluráðgjafar Brimborgar veita allar upplýsingar.

C1 er fyrir fólk sem er meðvitað um umhverfi sitt.

Sjáðu Citroën. Spyrðu um fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli