Citroën C4 Grand Picasso, 7 sæta
Citroën C4 Grand Picasso, 7 sæta
Smelltu á flokk

Citroën C4 Grand Picasso • Um C4 Grand Picasso 

06. febrúar 2012

Stýrðu nýjustu tískunni frá París: 7 sæta C4 Grand Picasso

Skoðaðu nýjan Citoën C4 Grand Picasso, listaverk frá landi hátískunnar, stimamjúkan fjölskylduþjón fyrir sjö. Aksturinn er hrein unun og útsýni sem arnar af hárri klettasyllu.

Njóttu þess besta í staðalbúnaði og öryggi C4 Grand Picasso; hvort sem er seiðandi innstigsljósanna, stöðugleikastýrikerfisins, hálkuviðvörunar eða annarra öryggisþátta sem gera Citroën C4 Picasso að einum eftirsóttasta 7 manna fjölskyldubílnum á markaðnum í dag. Nú þegar fullyrða bílagagnrýnendur að Citroën C4 Grand Picasso hafi breytt þeim viðmiðunum sem hingað til hafa verið gerð í flokki fjölskyldu- og fjölnotabíla (MPV).

Veldu drykk úr innbyggðum kælinum eða komfektmolans sem þú geymir í köldu hanskahólfinu. Fyrir aftan þig sitja litlir teiknarar sem hvíla blað og lit á innbyggðri borðplötunni í bökum framsætanna.

Njóttu öryggistilfinningarinnar sem öryggispúðar í stýri og mælaborði veita þér ásamt þeim sem eru í hliðum framsæta, undir stýri til að vernda hné ökumanns og öryggispúðatjalda í hliðum. ISO-fix barnabílstólafestingar eru á sínum stað.

Upplifðu frumlega hönnun fellanlegra sæta, sem gerir allar breytingar á rýminu aftan framsæta einkar fljótlegar og auðveldar. Sætin eru stillanleg hvert og eitt fyrir mjóhrygg og fjarlægð að framsætum. Fótarými er meira en í öðrum bílum í sama flokki, miðröðin breiðari en í bílum keppinauta og nú jafngildir það ekki lengur refsivist að þurfa að setjast í öftustu sætin tvö, svo rúmt er þar til fóta og lofts í C4 Grand Picasso.

Mælaborð er stílhreint og afar fallega hannað; laust við takka út um allt: þeim hefur nær öllum verið komið haganlega fyrir á fastri miðju stýrishólksins sem snýst ekki með stýrinu. Fjögur stór geymslurými eru í mælaborðinu og neðan þess.

Komdu í Brimborg og njóttu þess besta frá landi hátískunnar; Citoën C4 Grand Picasso.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli