Nýi framdrifni sendibíllinn Citroën Jumper er með afkastamikilli hundrað hestafla 2,2 lítra túrbódísilvél með 250 Nm togi. Þessi sendibíll er í flokki stærri sendibíla og er einstaklega hagkvæmur í rekstri enda eyðir vélin aðeins um 6,8 lítrum á langkeyrslu og 8,2 innanbæjar.
Tvær gerðir
Þú velur um tvær gerðir Jumper, þar sem annar er með átta rúmmetra hleðslurými og hinn tíu rúmmetra hleðslurými. Jumper L1H1 er rúmir tveir metrar á breidd og tæpir fimm metrar að lengd og tekur allt 1.155 kg af vörum. Stærri bíllinn, L2H1, er jafn breiður og L1H1 en rúmir 5,4 metrar að lengd. Hann ber allt að 1.115 kg.
Þægindi
Citroën Jumper er hannaður með öryggi og þægindi ökumanns í huga. Í farþegarýminu eru m.a. glasahaldarar, rúmgóð geymsluhólf og niðurfellanlegt borð. Sætin eru þægileg og upphitanleg og gírstöngin staðsett næst ökumanni. Ökumannssætið er hæðarstillanlegt og með armpúða. Þá er Jumper búinn hljómtækjum með geislaspilara sem stjórna má frá fjölstillanlegu stýrishjólinu. Þá er einnig unnt að stilla hæð aðalljósanna með tilliti til hleðslu bílsins hverju sinni. Hliðarspeglarnir eru að sjálfsögðu rafdrifnir og með stefnuljósum og aðkomuljósum.
Webasto
Jumper er með sjálfvirkri Webastomiðstöð sem viðheldur eðlilegum vinnsluhita á vél og kælivatni. Hann er því fljótur að hitna og viðhalda hita, jafnvel í miklum kulda.
Fjölhæfni
Jumper er með rennihurðum á báðum hliðum auk tvöfaldrar afturhurðar með tveimur rúðuþurrkum. Hleðslurýmið, sem er með góðu ljósi, er með klæðningu á gólfi og báðum hliðum til að verja bílinn gegn skemmdum.
Öryggi
Jumper er öruggur sendibíll enda búinn öryggispúðum í stýri og mælaborði. Við öll sæti eru þriggja punkta hæðarstillanleg öryggisbelti með rafstýrðum bílbeltastrekkjurum. Jumper er með stöðugleikastýringu, spólvörn og ABS með EBD hemlajöfnun og EBA hjálparhemlun.
Frábært verð
Komdu og kynntu þér nýjan og hagkvæman Citroën Jumper sem Brimborg býður á hreint frábæru verði.
Til að fá upplýsingar um verð og búnað þessa bíls þá vinsamlegast hafið samband við söluráðgjafa.