Hvernig er hægt að endurbæta nýja gerð bíls sem var mjög góð fyrir? Jú, með nýrri nálgun, nýjum sjónarhornum og með því að halda í þau gildi sem Citroën stendur fyrir. Með því að láta svolítið sjálfhverfa franska hönnun njóta sín. Hönnun sem er mjög framúrstefnuleg enda hugsuð fyrir sjálfstætt nútíma fólk.
Citroën leitar iðulega nýrra leiða til að fullnægja þörfum nútímamannsins. Það gerir Citroën einnig með nýjum Citroën C4, bílnum sem færir birtu í líf þitt.
Frakkar kunna að njóta lífsins og jákvæð lífsviðhorf franskra lífsunnenda eru gerð góð skil í Citroën bílum. Það er óþarfi að eyða drjúgum hluta ævinnar í bíl sem er einskonar ópersónulegt ferðahylki. Þú gætir allt eins tekið strætisvagn. Ef þú á annað borð ætlar að eiga bíl þá er eins gott að reyna að njóta lífsins. Njóttu lífsins á bíl sem er sparneytinn að hætti franskra borgarbíla, lipur sem ljúfar lýsingar bóhemsins Louis-Henri Murger og bíl sem er frægur fyrir frumlega nálgun sína á því hvað farartæki nútímans á að vera.
Nýjan Citroën C4 skortir fátt til að svara lífsins lystisemdum en hann svarar nútímakröfum á hagkvæman hátt. Citroën C4 býr yfir nýstárlegri tækni sem dregur úr loftmengun og eldsneytisnotkun. Citroën C4 nýtir meðal annars start stop tæknina á nýjan hátt með því að slökkva á vélinni þegar afls vélarinnar er ekki krafist. Þetta gerir Citroën C4 jafnvel í umferð, ef hraðinn er lítill. Í dæmigerðum hálftíma rúnt innanbæjar getur Citroën því jafnvel verið með slökkt á vélinni í nokkrar mínútur en þannig má spara talsvert eldsneyti.
Þægindin þekkir Citroën
Citroën hefur um áratuga skeið framleitt bíla sem eru annálaðir fyrir þægindi. Engin breyting hefur orðið á því enda eru þægindi einn þekktasti eiginleiki Citroën.
En með nýjum C4 gefast ný tækifæri. Citroën fer enn og aftur nýjar leiðir til að finna sína eigin lausn.
Sætin í Citroën C4 eru afbragð. Þau eru ekki aðeins falleg á að líta heldur einnig yndisleg að sitja í. Þessu má þakka því að seta sætisins er sérstaklega mjúk á meðan hliðarnar eru stífari. Það er einnig hægt að panta nuddkerfi í framsæti Citroën C4 og þannig má njóta gæða sem venjulega eru bara til staðar í dýrum lúxusbílum.
Í amstri hversdagsins hafa hönnuðir Citroën C4 gætt þess að vernda farþega og bílstjóra bílsins. C4 er sérstaklega hljóðeinangraður með hentuga hljóðvist í huga. Það er leikur einn að slaka á og njóta framúrskarandi hljómgæða þegar hljóðeinangrun bílsins er vönduð.
Þá er í Citroën C4 hugsað fyrir allskonar smáatriðum sem vísa veginn í umhyggju Citroën. Það er til dæmis afar hentugt að geta haldið hita farþegarýmisins óbreyttu um stund á meðan skroppið er inn í búð. Citroën C4 getur haldið hitastiginu í bílnum í 8 mínútur eftir að slökkt er á bílnum og honum læst. Hægt er að skreppa inn í búð og koma út aftur í svalan bíl að sumri til, eða heitan að vetri til.
Citroën C4 hleypir líka raunverulega birtu í líf þitt með stórum rúðum sem gera mikið til þess að skapa andrúmsloft léttleika í farþegarýminu. Með glæsilegu glerþaki sem fáanlegt er sem aukabúnaður er hægt að skapa innanrými sem býr yfir nægu flæði náttúrulegrar birtu sem laðar fram vellíðan. Ef birtan verður of mikil þá má hreinlega draga fyrir glerþakið með því að þrýsta á einn hnapp.
Á löngum ferðalögum nýtist rúmgott 408 lítra farangursrými Citroën C4 vel og farþegarnir munu kunna að meta aðgengileg geymsluhólf hér og þar um bílinn. Einnig er hægt að njóta þess að teygja sig í kaldann svaladrykk í innbyggt kælihólf á milli framsætanna.
Hagkvæmni Citroën C4
Hagkvæmni, velferð, stjórn, stíll, fjölbreytileiki, fágun og þjónusta eru orðin sem marka jákvætt afl hins nýja Citroën C4. Raðaðu saman þessum kostum og niðurstaðan er Citroën C4.
Öryggið er í fremstu röð. Líknarbelgir, stöðugleikastýring, spólvörn, hemlajöfnun, neyðarhemlunarbúnaður og fáanlegur búnaður eins og blindblettsviðvörunarkerfi eða Xenon framljósabúnaður sem lýsir inn í beygjur í stað þess að lýsa út úr þeim, ásamt öðrum öryggisbúnaði tryggja Citroën C4 fimm stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP.
Það er auðvelt að tengjast sterkum böndum í C4. Skoðaðu hvaða búnaður er fáanlegur, leitar þú eftir tengimöguleikum eins og Bluetooth og USB, þá leysir Citroën C4 fyrir þig vandann. Það er meira að segja lítið mál að tengja hefðbundin tæki eins og fartölvur við rafmagn því hægt er að fá 230 volta tengi fyrir Citroën C4 – tilvalið fyrir tónhlöðuna, stafrænu myndavélina þína og aðra hluti sem fylgja athafnasömu fólki.
En hagkvæmnin næst ekki eingöngu með því að létta þér lífið. Citroën hefur gætt þess að leita allra leiða til þess að draga úr eldsneytisnotkun og losun koldíoxíðs.
Leysigeislaskorið hástyrktarstál er notað víða um bílinn til þess að auka styrk og draga úr þyngd. Háþróuð plastefni eru notuð í sama tilgangi og niðurstaðan er léttur bíll. Sérstaklega þegar haft er í huga hve vel útbúinn og rúmgóður hann er. En Citroën gengur þó lengra. Sérstök lágviðnámsdekk eru á Citroën C4 og 6 gíra gírkassi með sparnaðarvísi er fáanlegur. Léttur bíll og hagkvæmur, nær að lágmarka losun koldíoxíðs en hún er frá 109 g/km fyrir 1,6 lítra HDi vélina sem notar einungis 4,2 lítra á hundraðið í blönduðum akstri þrátt fyrir að skila 90 hestöflum og 230 Nm. togi.
Þá er Citroën C4 smíðaður í Mulhouse verksmiðjunni í Frakklandi en verksmiðjan hefur náð gríðarlegum árangri endurvinnslu og vatnssparnaði á síðustu 30 árum. Vatnsnotkun hefur minkað fjórtánfalt og 99,5% af því sem fellur til við framleiðsluna er endurnýtt. Visthæfni Citroën C4 byrjar því ekki eingöngu á bílnum, heldur í framleiðslu bílsins sjálfs.
Hefur aksturseiginleikana í för með sér
Einn eiginleiki virðist oft gleymast hjá öðrum bílaframleiðendum en það eru aksturseiginleikarnir en án þeirra fara ökumenn á mis við hina djúpstæðu ánægju sem fylgir því að aka góðum bíl. Citroën klikkar ekki á þessu. Árangur Citroën í rallakstri undanfarin ár hefur skilað sér í framleiðslu Citroën og nýjustu bílarnir, eins og Citroën C4 njóta árangursins sérstaklega.
Aðstaða ökumanns er hin ákjósanlegasta. Gott útsýni er úr bílnum og upprétt staða ökumanns virkjar athygli hans við aksturinn. Grip háþróaðrar framfjöðrunar bílsins tryggir að Citroën C4 er snar í snúningum og lipur þegar mikið liggur við. Í gegnum þykkt stýrið koma framhjólin nauðsynlegum upplýsingum á framfæri í þjóðvegakstri en við venjulegan innanbæjarakstur er stýrið leikandi létt, eins og best er að hafa það í þröngum götum og bílastæðum. Þétt fjöðrun C4 undirstrikar að bíllinn ræður vel við líflegan akstur án þess þó að þægindum fjöðrunarinnar sé fórnað við aðstæður sem eru misgóðar.
Það er hinsvegar samspil allra einstakra eiginleika Citroën C4 sem gerir hann að framúrskarandi bíl. Aðeins með því að leita nýrra leiða við að framfylgja góðum gildum er hægt að gera bíl sem var góður, enn betri.
Sjáðu Citroën. Spyrðu um Fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.