Smelltu á flokk

Citroën Berlingo Van • Um Berlingo Van 

06. febrúar 2012

Vinnustaður á hjólum

Citroën Berlingo Van er ekta franskur atvinnubíll. Upplifðu Citroën Berlingo Van og sjáðu hvernig hann eykur virði þinnar vinnu. Skoðaðu hve hagkvæmur kostur Citroën Berlingo Van er. Sjáðu hve notagildið er gríðarlegt.

Frakkar fara ótroðnar slóðir við að finna nýjar lausnir. Framúrstefnuleg hugsun tryggir að Citroën leysir þær kröfur sem gerðar eru til atvinnubíla án þess að það komi niður á verði bílsins eða rekstarkostnaði. Það er snjöll lausn. Svona er Citroën Berlingo Van. Citroën Berlingo Van er fyrir þá sem hugsa sjálfstætt. Þú markar þér sérstöðu með Citroën Berlingo Van.

Franskir sendiferðabílar hafa fyrir löngu getið sér frægðar. Citroën Berlingo Van er nútíma útgáfa slíkra bíla, bílanna sem ruddu brautina fyrir bílahönnun framtíðarinnar. Sjáðu hvernig Citroën mætir kröfum vinnandi fólks. Sjáðu hvernig Citroën Berlingo Van sameinar kosti vinnubíls jákvæðum eiginleikum hagkvæmni og þæginda.

Citroën Berlingo Van er ákaflega fjölhæfur bíll. Þar sem um atvinnubíl er að ræða þarf hann einnig að vera með afbrigðum sterkbyggður og því hagkvæmari sem bíllinn er því betri er hann sem atvinnubíll. Citroën berlingo Van er hannaður til þess að mæta ýtrustu kröfum – fumlaust.

Citroën Berlingo fæst bæði sem sendibíll (Van) og sem fjölskyldubíll (Multispace) en báðar útgáfurnar eru einstakar hvað fjölhæfni og góð kaup varðar. Það er meðal annars þess vegna sem Citroën Berlingo nær að höfða til ótrúlega breiðs hóps fyrirtækja og einstaklinga sem láta skynsemina ráða.

Vinnuþjarkur

Þó um atvinnubíl sé að ræða hefur Citroën gætt þess að Citroën Berlingo Van hegði sér í akstri eins og venjulegur fjölskyldubíll. Með því að laga bílinn að þörfum athafnasamra fékkst bíll sem getur sinnt flestum þörfum verktaka eða fyrirtækja án kostnaðarauka.

Sjáðu. Citroën Berlingo Van er einstaklega rúmgóður vinnubíll sem kostar þó bara svipað í kaupum og rekstri og algengir smábílar. Það er mikil skynsemi í því. Ofgnótt rýmis er það fyrsta sem þú tekur eftir þegar sest er inn í Citroën Berlingo Van. Nóg höfuð-, fóta- og vöru- eða vinnurými er í Citroën Berlingo Van. Það eru ekki margir bílar sem geta boðið allt þetta fyrir svipað og smábíll kostar í kaupum og rekstri.

Burðargeta Citroën Berlingo Van er sérlega mikil. Hleðslurýmið er 3,3 metra langt og má lesta bílinn með 850 kílóum.

Til að gera þér lífið sem léttast opnast afturhurðir bílsins um 180 gráður og því er ekkert sem hindrar hleðslu bílsins.

Atvinnubílstjórar kunna að meta þau þægindi sem Citroën Berlingo Van býður upp á. Fjarlægðarskynjarar, loftkæling og Bluetooth kerfi með USB tengingu er allt búnaður sem gerir atvinnumönnum lífið léttara.

Góður draumur

Skoðaðu hvernig Citroën Berlingo Van getur létt þér vinnuna og bætt framlegð fyrirtækisins. Fáir bílar bjóða viðlíka notagildi, sparneytni, öryggi og þægindi eins og Citroën Berlingo Van. Og þar að auki á viðráðanlegu verði. Með Citroën Berlingo Van hefur tekist að mæta gjörólíkum kröfum í einum og sama bílnum.

Það er afrek hvernig þetta er hægt í bíl sem býr yfir risastóru hleðslurými og öllum nútíma þægindum sem ökumaður þarfnast. Gerðu miklar kröfur til vinnubílsins. Citroën Berlingo Van mætir þeim.

Sjáðu Citroën. Spyrðu um Fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli